Minnka má eldsneytisflutninga 13. nóvember 2005 22:53
Allt flugvélaeldsneyti fyrir alþjóðaflugvöllinn í Keflavík, sem er um 130 þúsund tonn á ári, eru flutt í gegnum höfuðborgarsvæðið frá Örfirisey. Skeljungur sem þjónustar FL Group flytur allt að hundrað þúsund tonn af flugvélasteinolíu á ári, hefur síðustu misseri reynt að fá að nýta birgðastöð bandaríkjahers í Helguvík án árangurs. Olíudreifing hefur einnig viljað nýta birgðastöðina undir flugvélaeldsneyti en ekki fengið. Allir samningar við herinn um notkun birgðastöðvarinnar þurfa að fara í gegnum utanríkisráðuneytið. Augljós hætta fylgir eldsneytisflutningum og er það þyrnir í augum margra að olíubirgðastöð sé í Örfirisey og að flutningsleiðir séu í gegnum Reykjavík þvera og endilanga. Hjá Reykjavíkurborg átti að stofna nefnd um málið í vor að tillögu Guðlaugs Þórs Þórðarsonar en sú nefnd hefur ekki enn orðið til, alla vega ekki tekið til starfa. Tengivagn aftan í olíuflutningabíl á vegum Skeljungs losnaði aftan úr í Hafnarfirði en verið var að flytja flugvélasteinolíu til Keflavíkurflugvallar fyrir rúmri viku. Mildi þykir að ekki hafi farið verr þegar óhappið varð en oft þarf lítið að bregða út af til að óhöpp sem þessi verði. Í þessu tilfelli nægði að dæla eldseytinu úr tengivagninum yfir í tankbíl þar sem ekkert lak úr tanknum. Eingöngu er hægt að ímynda sér hversu margar tankbíla þarf á ári til þess að flytja um 130 þúsund tonn af flugvélaeldsneyti til Keflavíkur. Það má velta því upp hvort ekki væri heppilegra að olíubirgðastöð yrði alfarið fyrir utan höfuðborgarsvæðið en nokkur rök eru gegn því. Þannig gætu flutningar eldsneytis aukist til muna þar sem flytja þyrfti mjög stóran hluta bensín aftur til höfuðborgarsvæðisins þar sem bílafjöldinn er mestur. Mörg skip sigla líka að olíubirgðastöðinni í Örfirisey til að taka olíu sem þau myndu kannski ekki gera ef leiðin að olíunni yrði lengri og þá þyrfti að flytja olíuna til þeirra um götur
Fréttir Innlent Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Sjá meira