Eftirlitsnefndin virkar ekki sem skyldi 12. nóvember 2005 19:41
Eftirlitsnefnd fasteignasala er bara pappírstígrisdýr, sem slær á puttana á lögbrjótum og segir skamm, þrátt fyrir að brotin séu mjög alvarleg, segir formaður Húseigendafélagsins. Félag fasteignasala hefur leitað til dómsmálaráðuneytisins vegna þess hve nefndin vinnur hægt og tekur lítt á málum. Fasteignasali sem seldi uppkomnum syni sínum íbúð viðskiptavinar braut gegn lögum um fasteignasala. Þetta er álit eftirlitsnefndar Félags fasteignasala, en einu viðurlögin sem salinn var hinsvegar beittur var áskorun um að bæta ráð sitt. Nefndin hefur heimild til að veita alvarlegar áminningar, svipta menn réttindum og loka starfsstöðvum þeirra. Félag fasteignasala í Danmörku sektar óhikað félagsmenn sina. Nýlega fékk fasteignasali sekt upp á tæpa hálfa milljón íslenskra króna fyrir að kaupa sjálfur lúxusíbúð beint fyrir framan nefið á áhugasömum kaupanda. Parið sem varð af íbúðinni við þetta lögbrot fasteignasalann verður að fara fyrir dómstóla vilji þau fá kaupunum rift og fasteignasalanum refsað með einhverjum hætti. Björn Þorri Viktorsson, formaður félags fasteignasala, segir félagið hafa leitað til dómsmálaráðuneytisins vegna þess hvað því finnst nefndin vinna hægt og taka lítt á málum. Félagið hafi reynt í nokkra mánuði að koma málum til betri vegar, en lítið áunnist. Ekki sé langt síðan framkvæmdastjóri félagsins sendi ítrekun til nefndarinnar vegna 50 erinda, sem send voru nefndinni, sem ýmist hefur ekki verið svarað eða ekki afgreidd. Ekki náðist í formann eftirlitsnefndarinnar í dag. Magnús Einarsson, einn þriggja nefndarmanna, vildi ekki láta hafa neitt eftir sér að sinni.
Fréttir Innlent Mest lesið Létu sér andlát Hjörleifs í léttu rúmi liggja Innlent Lykillinn að kraftaverki að Birgir var frá Íslandi Erlent Vissu af auknum töfum en óraði ekki fyrir viðbrögðunum Innlent Magga Stína á leið til Gasa með Frelsisflotanum Innlent Fossvogsbrúin sé álíka gáfuleg og að setja göngustíg í Reynisfjöru Innlent Átján tegundir af sólarvörn teknar úr sölu í Ástralíu Erlent Ríkisreksturinn í Bandaríkjunum í limbó Erlent Ísland land númer 197 Innlent Hætt við sameiningu HA og Háskólans á Bifröst Innlent Læknir í Kópavogi blekkti fjölskyldu sína með lygasögu um krabbamein Innlent Fleiri fréttir Rafmagnslaust á Dalvík, Hrísey og nágrenni Hætt við sameiningu HA og Háskólans á Bifröst Bjóða Grindvíkingum á seiglunámskeið Fimmtungur getur ekki keypt afmælisgjafir fyrir börnin sín Reyna að bjarga starfseminni á Möltu og slæmar fregnir af makrílveiðinni Bein útsending: Loftslagsdagurinn Bein útsending: Staða launafólks á Íslandi Létu sér andlát Hjörleifs í léttu rúmi liggja Konur og háskólamenntaðir líklegri til að vilja frekari aðgerðir gegn Ísrael Bein útsending: Heilbrigðistæknilausnir og -þjónusta Biskup Íslands heimsækir Úkraínu Vissu af auknum töfum en óraði ekki fyrir viðbrögðunum Magga Stína á leið til Gasa með Frelsisflotanum Útköll vegna slagsmála Þurftu að finna lausn á uppskáldaðri hryðjuverkaárás á Íslandi Fossvogsbrúin sé álíka gáfuleg og að setja göngustíg í Reynisfjöru Ísland land númer 197 Skiptastjóri þurfi að ákveða hvort hann geri kröfu í dótturfélag Play Fjöldauppsagnir á Keflavíkurflugvelli Gjaldþrotið leiðir til hópuppsagnar og afarkostir Bandaríkjaforseta Fyrrum meðferðarheimili sett á sölu Strandaglópar slaga í tuttugu þúsund Sultuslakir strandaglópar eftir heilsuferð til Split Kallar þjóðaröryggisráð saman Verulegt högg fyrir ferðaþjónustuna Eftirköstin af gjaldþroti Play og friðaráætlun á Gasa Læknir í Kópavogi blekkti fjölskyldu sína með lygasögu um krabbamein Áhyggjur landsmanna af útbreiðslu hernaðarátaka í Evrópu aukast Hættir sem þingflokksformaður Sundlaugar borgarinnar verði bættar fyrir ungbarnafjölskyldur Sjá meira