Yfirheyra fjölda grunaðra manna 11. nóvember 2005 12:15
Jórdanskir lögreglumenn hafa yfirheyrt fjölda Araba, þeirra á meðal nokkra Íraka, vegna hryðjuverkanna í Amman, höfuðborg Jórdaníu, í fyrrakvöld. Íslendingur var væntanlegur á eitt hótelanna sem árás var gerð á skömmu eftir sprengingarnar. Húsleitir voru gerðar í húsum víða í hverfum efnaminni íbúa Amman, höfuðborgar Jórdaníu, í gær þar sem margir íraskir verkamenn búa. Fjöldi manna hefur verið tekinn til yfirheyrslu. Að sögn Awni Yarfas innanríkisráðherra eru þeir af margvíslegu þjóðerni og þeirra á meðal nokkrir Írakar. Abdullah konungur hét því að hafa upp á þeim sem stóðu að baki árásunum hvaðan sem þyrfti að draga þá úr felum. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, kemur til Jórdaníu í dag. Stefanía Reinhardsdóttir Khalifeh, aðalræðismaður Íslands í Jórdaníu býr í Amman. Hún segir borgarbúa reiða í garð árásarmanna, sérstaklega vegna þess að margir þeirra sem létust voru í brúðkaupsveislu á einu hótelanna. Þá velti heimamenn því fyrir sér að hverjum árásirnar beindust. Í yfirlýsingu sem talin er frá al-Kaída segir að ráðist hafi verið á hótelin vegna þess að bandarískir njósnarar og gyðingar hefðu gist á þeim. Flestir þeirra sem létust voru hins vegar óbreyttir jórdanskir borgarar og segir Stefanía að fólk eigi því erfitt með að átta sig á hvað vakti fyrir árásarmönnunum. Einn Íslendingur átti að gista á Grand Hyatt hótelinu og var væntanlegur þangað skömmu eftir að árásirnar voru gerðar. Hann er í flugáhöfn flugvélar Cargolux sem átti að gista á hótelinu en þegar árásirnar voru gerðar var ákveðið að tæma flugvélina og halda á brott. Þá hafa hópar Íslendinga gist á Days Inn hótelinu og Skandinavíufélagið hefur haldið starfsemi sína á Radisson SAS hótelinu. Þar stendur til að halda jólakynningu í næstu viku og hefur verið ákveðið að halda sig við þá áætlun þrátt fyrir árásirnar.
Erlent Fréttir Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Fleiri fréttir Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Sjá meira