Innlent

Komast ekki á sjó vegna manneklu

Dæmi eru um að fiskiskip komist ekki á sjó þar sem ekki tekst að manna þau vegna óánægju með stöðugt lélegri laun á sama tíma og laun annarra launþega fari hækkandi.

Kjör flestra sjómanna hafa rýrnað umtalsvert á síðustu misserum og eru í sumum tilvikum komin niður í það sem þau voru fyrir fim árum. Árna Bjarnasyni, formanni Farmanna- og fiskimannasambandsins, er til dæmis kunnugt um að laun á tilteknum ísfikstogara hafi lækkað um 25 prósent, eða fjórðung, á meðan aðrir launþegar í landinu njóta kauphækkana og launaskriðs uppávið.

Sjómenn nýta sér það nú í æ ríkara mæli að mörg störf bjóðast nú í landi og Hólmgeir Jónsson hjá Sjómannasambandinu segist þekkja dæmi þess að skip hafi hreinlega ekki komist á sjó vegna mannekklu. Hann og Árni eru sammála um það að útgerðirnar fari að leita að erlendu vinnuafli, sem í sjálfu sér sé allt í lagi sé farið að íslenskum reglum, eins og til dæmis að þeir fari í Slysavarnaskóla sjómanna eða hafi farið í sambærilegan skóla ytra.

Þá fækkar nemendum í skipstjórnarnámi ár frá ári og óttast Árni Bjarnason að fyrr en síðar fari að skorta yfirmenn líka. Þegar kemur að skipstjórnarmönnum fer málið að vandast því samkvæmt íslenskum lögum verða skipstjórar á íslenskum fiskiskipum að skilja og tala íslensku.

Hátt gengi krónunnar á verulegan þátt í þessu þar sem færri dollarar fást fyrir afurðirnar en ella og bendir Árni á að ef gengi hennar lækkaði um 25 prósent, eins og sérfræðingar bankanna eru farnir að spá innan tveggja ára, leiðréttist kjör sjómanna til muna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×