Sérstakt ökunám vegna pallbíla 4. nóvember 2005 20:45
Þeir sem tóku bílpróf eftir 1. júní 1993 og keyra nú um á þungum, bandarískum pallbílum eða húsbílum, eru réttindalausir í umferðinni. Umferðarstofa hefur brugðist við aukinni útbreiðslu bíla þessarar gerðar með því að bjóða upp á sérstakt ökunám sem gefur réttindi á þessa millistærð af bílum. Lágt gengi bandaríkjadollars hefur leitt til mikils innflutnings bíla frá Bandaríkjunum undanfarin ár. Þar á meðal er þó nokkuð af pallbílum og húsbílum sem vega meira en þrjú og hálft tonn. Og þá eru þeir komnir í vörubílaflokk og til þess að mega aka farartækjum í þeim flokki þarf meira en bara venjulegt bílpróf. Það er hins vegar bæði dýrt og tímafrekt að taka meirapróf enda eru þau miðuð við þá sem ætla að hafa atvinnu af akstri vörubíla eða fólksflutningabifreiða en ekki fólk sem vill bara geta farið í sunnudagsbíltúr með fjölskylduna í nýja, ameríska kagganum. Einar Magnús Magnússon, upplýsingafulltrúi Umferðarstofu, segir að menn þurfi nú ekki að taka meirapróf til að aka pallbílunum heldur geti þeir fengið réttindi til að aka bílum sem séu allt að 7,5 tonn að heildarþyngd. Einar segir ekki vitað hversu margir bílstjórar séu í þessum hópi en lögregla hafi þegar stöðvað þónokkra og sektað fyrir að aka án tilskilinna réttinda. Þeir sem tóku bílpróf fyrir árið 1988 mega keyra flestöll farartæki á meðan það er ekki í atvinnuskyni og þeir sem tóku prófið á árabilinu 1988 fram til 1. júní 1993 mega aka farartækjum sem eru upp að fimm tonn að þyngd. Aðspurður hvers vegna miðað sé við 3,5 tonn segir Einar að þetta hafi verið ákveðið á sínum tíma. Reglurnar verði alltaf þrengri og þrengri með tímanum og það sé vegna þess að umferðin sé orðin meiri en hún var og sé annars eðlis. Herða þurfi reglurnar til að gæta fyllstu varúðar og forðast slys.
Fréttir Innlent Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Sjá meira