Innlent

Sérstakt ökunám vegna pallbíla

Þeir sem tóku bílpróf eftir 1. júní 1993 og keyra nú um á þungum, bandarískum pallbílum eða húsbílum, eru réttindalausir í umferðinni. Umferðarstofa hefur brugðist við aukinni útbreiðslu bíla þessarar gerðar með því að bjóða upp á sérstakt ökunám sem gefur réttindi á þessa millistærð af bílum.

Lágt gengi bandaríkjadollars hefur leitt til mikils innflutnings bíla frá Bandaríkjunum undanfarin ár. Þar á meðal er þó nokkuð af pallbílum og húsbílum sem vega meira en þrjú og hálft tonn. Og þá eru þeir komnir í vörubílaflokk og til þess að mega aka farartækjum í þeim flokki þarf meira en bara venjulegt bílpróf.

Það er hins vegar bæði dýrt og tímafrekt að taka meirapróf enda eru þau miðuð við þá sem ætla að hafa atvinnu af akstri vörubíla eða fólksflutningabifreiða en ekki fólk sem vill bara geta farið í sunnudagsbíltúr með fjölskylduna í nýja, ameríska kagganum.

Einar Magnús Magnússon, upplýsingafulltrúi Umferðarstofu, segir að menn þurfi nú ekki að taka meirapróf til að aka pallbílunum heldur geti þeir fengið réttindi til að aka bílum sem séu allt að 7,5 tonn að heildarþyngd.

Einar segir ekki vitað hversu margir bílstjórar séu í þessum hópi en lögregla hafi þegar stöðvað þónokkra og sektað fyrir að aka án tilskilinna réttinda. Þeir sem tóku bílpróf fyrir árið 1988 mega keyra flestöll farartæki á meðan það er ekki í atvinnuskyni og þeir sem tóku prófið á árabilinu 1988 fram til 1. júní 1993 mega aka farartækjum sem eru upp að fimm tonn að þyngd.

Aðspurður hvers vegna miðað sé við 3,5 tonn segir Einar að þetta hafi verið ákveðið á sínum tíma. Reglurnar verði alltaf þrengri og þrengri með tímanum og það sé vegna þess að umferðin sé orðin meiri en hún var og sé annars eðlis. Herða þurfi reglurnar til að gæta fyllstu varúðar og forðast slys.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×