Ráðherra spurður um fangaflug í íslenskri lofthelgi 1. nóvember 2005 12:55 Herflugvél á velli varnarliðsins.
Svo virðist sem bandaríska leyniþjónustan CIA noti Keflavíkurflugvöll oft sem viðkomustað fyrir svonefndar draugaflugvélar sínar, sem sagt er að séu notaðar til að flytja grunaða hryðjuverkamenn til landa þar sem pyntingar eru leyfðar við yfirheyrslur. Fram er komið í framhaldi af umfjöllun danskra fjölmiðla um fangaflug CIA á tiltekinni vél að sama vél lenti í Keflavík áttunda mars og hafi það verið í þriðja sinn frá ársbyrjun árið 2002 sem hún lendi þar. Eins og fram kom í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi hefur flugvallarstjórinn í Stavangri í Noregi staðfest að meint CIA-vél, sem kom frá Rúmeníu, hafi haft viðkomu í Stavangri á leið sinni til Keflavíkur fyrr á árinu. Þá greindi Flemming Hansen, samgönguráðherra Dana, frá því í gær að önnur meint CIA-vél en sú sem lenti í Keflavík í mars hafi flogið í gengum danska lofthelgi tíunda október síðastliðinn á leið sinni frá Íslandi til Ungverjalands. Hér er aðeins um tvær tilteknar flugvélar að ræða en grunur leikur á að CIA hafi umráð yfir mun fleiri vélum, sem allt eins kunna líka að hafa viðkomu hér á landi. Til dæmis lenti hér á Reykjavíkurflugvelli fyrir tæpum mánuði tveggja hreyfla, rúmlega 30 farþega, Casa flugvél, sömu gerðar og með sömu einkennisstafi og The New York Times birti mynd af á sínum tíma á flugvellinum í Prag, þar sem hún er á leið til Afanistana að sækja fanga. Ekki fengust upplýsingar um það hjá Flugmálastjórn fyrir hádegi hvaðan vélin var að koma hingað til lands eða hvert hún var að fara. Upplýsingar samgögnuráðherra Danmerkur um vélina frá tíunda október hafa orðið til þess að hann hefur verið kallaður fyrir utanríkisnefnd danska þingsins þegar hún fjallar um málið. Tilefnið er að danska utanríkisráðuneytið mótmælti því formlega við bandarísk stjórnvöld í ágúst að flugvélar í áðurnefndum tilgangi flygju um danska lofthelgi en flug síðustu vélarinnar gæti bent til þess að bandarísk stjórnvöld hafi þá málaleitan Dana að engu. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, hefur lagt fram fyrirspurn til Geirs Haarde utanríkisráðherra um sama mál og nú er efst á baugi í Danmörku, það er að segja meint fangaflug CIA um íslenska lofthelgi.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent Kynntu þingmálaskrá vetrarins Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Erlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Sjá meira