Innlent

Konan og stúlkan fundnar

Konan og stúlkan sem leitað hefur verið að á Austurlandi í dag eru komnar í leitirnar. Þær fundust inni á Möðrudalsöræfum rétt fyrir klukkan ellefu í kvöld. Vegfarandi sem heyrt hafði tilkynningu lögreglu um að þeirra væri leitað keyrði fram á þær og lét lögreglu vita. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Fáskrúðsfirði amar ekkert að þeim en lögreglan er á leiðinni á svæðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×