Innlent

Vilja kynbæta kúna

Kýr á beit.
Kýr á beit.

Eyfirskir kúabændur vilja að hafinn verði undirbúningur að innflutningi erfðavísa til að kynbæta íslenska kúakynið. Félagar í Búgreinaráði Búnaðarsambands Eyjafjarðar í nautgriparækt samþykktu ályktun þessa efnis á fundi sínum í gærkvöldi. Þar með slást þeir í hóp með borgfirskum bændum sem höfðu áður ályktað í sömu veru.

Bændurnir telja litla endingu íslensku kúarinnar og vanhöld á kálfum til marks um að íslenska kúakynið verði að kynbæta. Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra hefur hins vegar sagt að ekki komi til greina að leyfa innflutning erfðaefnis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×