Íslenskir karlar eldast og fitna 25. október 2005 10:00
Íslenskir karlar eru að fitna og eldast á sama tíma og konur virðast ráða betur við þyngdina og meðalaldur þeirra hækkar ekki jafn mikið og karla. Aukin velmegun er því ekki eingöngu sýnileg í miklum launamun heldur einnig á heilsu- og holdarfari. Hagstofan hefur tekið saman tölur undanfarinna þrjátíu ára þar sem borið er saman heilsufar, staða á vinnumarkaði, og staða kynjanna almennt. Margt hefur breyst á þessum árum hvað varðar aldurssamsetningu og lífsvenjur. Þjóðin er að eldast því árið 1975 voru fjörutíu prósent kvenna undir tvítugu en nú eru þær aðeins tuttugu og níu prósent og er þróunin svipuð hjá körlum. Fæðingartíðni hefur einnig lækkað úr tveimur komma sex börnum á hverja konu í tvö. Sem fyrr er meðalævilengd kvenna lengri en karla en bilið milli kynjanna hefur þó minnkað því meðalævilengd karla hefur aukist hlutfallslega meira en kvenna frá fyrsta kvennafrídeginum. Munurinn á meðalævi kynjanna er nú þrjú komma fimm ár en var fimm komma níu ár fyrir þrjátíu árum. Karlar hafa bætt rúmum átta árum við ævilengd sína en konur rétt rúmum fimm árum. Stúlkur sem fæðast nú geta vænst þess að verða áttatíu og tveggja ára, en drengir 79 ára. Þjóðin er ekki bara að eldast heldur fitnar hún á sama tíma, því fólki yfir kjörþyngd hefur fjölgað síðustu árin. Á undanförnum árum hækkaði hlutfall kvenna yfir kjörþyngd úr þrjátíu og fjórum prósentum í þrjátíu og níu. Karlarnir hafa hér vinninginn því körlum yfir kjörþyngd hefur fjölgað úr þrjátíu og níu prósentum í fimmtíu og sjö. Og of feitum konum fjölgaði um fjögur prósent en of feitum körlum um sex prósent.
Fréttir Innlent Mest lesið Hreinsanir hafnar í Íran Erlent Twitter-morðinginn tekinn af lífi Erlent Sagði Sean Combs ekki virða svarið „Nei“ Erlent Ákærð fyrir að frelsissvipta dreng eftir dyraat Innlent Hætta á að Gjögurtáarviti falli í sjóinn Innlent Maðurinn bak við Stokkhólmseinkennið allur Erlent „Fyrir vikið er flokkurinn á hverfandi hveli“ Innlent Ingvar útskrifaður úr meðferð Innlent Stærsti árgangur sögunnar fer í framhaldsskóla: „Það verður þétt setið í skólastofunni“ Innlent Litla kaffistofan skellir í lás Innlent Fleiri fréttir Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Sjá meira