Innlent

Actavis styrkir Blátt áfram

Systurnar Sigríður og Svava taka við styrknum úr hendi Sigríðar Björnsdóttur, starfsmannastjóra Actavis.
Systurnar Sigríður og Svava taka við styrknum úr hendi Sigríðar Björnsdóttur, starfsmannastjóra Actavis. MYND/Actavis

Actavis veitti forvarnarverkefni Ungmennafélags Íslands, Blátt áfram, einnar milljónar króna styrk í dag. Verkefninu er ætlað að efla forvarnir gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum á Íslandi.

Blátt áfram var stofnað af systrunum Svövu og Sigríði Björnsdætrum og veittu þær styrknum viðtöku í húsakynnum Actavis í morgun. Styrknum verður varið í auglýsingaherferð og í endurprentun á bæklingnum "Sjö skref til verndar börnunum okkar" sem er helsta fræðsluefni samtakanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×