Óljóst hvort launaleynd eigi sér stoð í lögum 24. október 2005 19:30
Ákvæði um launaleynd í ráðningarsamningum, sem fjölmörg fyrirtæki láta starfsmenn sína skrifa undir, vinnur gegn því að konur og karlar fái sömu laun fyrir sömu vinnu. Óljóst er þó hvort launaleynd á sér stoð í lögum og á það hefur enn ekki reynt hér á landi. Íslenskar konur lögðu niður vinnu fyrir 30 árum með eftirminnilegum hætti og vildu þannig sýna fram á mikilvægi vinnuframlags kvenna. Ýmislegt hefur áunnist síðustu þrjá áratugi og konur hafa haslað sér völl víða en það skortir enn á að það sé til jafns við karla. Árið 1975 áttu þrjár konur sæti á Alþingi. Árið 2005 eru þær 21, eða þriðjungur. Í dag eru konur átján prósent framkvæmdastjóra og 22 prósent stjórnarformanna fyrirtækja sem skráð eru í hlutafélagaskrá samkvæmt tölum frá Hagstofunni og hefur sú tala haldist óbreytt síðustu ár. Hlutfall kvenna er hæst í minnstu fyrirtækjunum en minnkar eftir því sem fyrirtækin stækka. Þá svíður að enn er stórt bil mili launa kvenna og karla. Munur á meðaltímakaupi kynjanna meðal verkafólks og afgreiðslufólks hefur lítið breyst á þrjátíu árum og meðallaun kvenna sem hlutfall af launum karla eru rúm 64 prósent. Munurinn er til staðar hvort sem litið er til opinbera geirans eða almenns vinnumarkaðar, sem hlýtur að teljast athyglisvert í ljósi þess að samkvæmt landslögum ber atvinnurekendum skylda að koma í veg fyrir kynbundna mismunun. Meðal þess sem vinnur gegn launajafnrétti er svokölluð launaleynd að mati Sifjar Konráðsdóttur hæstaréttarlögmanns. Í Danmörku gera jafnréttislög slík ákvæði í ráðningarsamningum að engu. Það eru hins vegar engin slík ákvæði í íslenskum jafnréttislögum og aldrei hefur á það reynt hvort atvinnurekendur geti neitað að afhenda upplýsingar um laun starfsmanna vegna slíkra ráðningarsamninga. Fólk ætti að hugsa sig tvisvar um áður en það gengst undir slíka samninga að mati Sifjar. Hún segir það mikilvægt að umræðan eigi sér stað svo launþeginn sé meðvitaður um að hann sé að skrifa undir þetta og velti fyrir sér hvort hann vilji hafa þessi skilyrði fyrir því að vera ráðinn og af hverju. „Ef það er til þess að viðhalda mismunandi launum til karla og kvenna þá eru það vondar tvíbökur," segir Sif.
Fréttir Innlent Mest lesið Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Innlent „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Innlent „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Innlent Farage segir af sér þingmennsku eftir uppljóstranir um gjafir Erlent Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Innlent Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu Innlent Vill afnema sektir við vændiskaupum Innlent Heilsufarsskoðanir skuli framkvæmdar að lágmarki fjórum sinnum Innlent Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Innlent „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Innlent Fleiri fréttir Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu NATO-ríki auki stuðning við Úkraínu Spurning með sálina Girnist enn Grænland, vændiskaup og áfengisauglýsingar áhrifavalda Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun Heilsufarsskoðanir skuli framkvæmdar að lágmarki fjórum sinnum Yngstu fara flestar ferðir Steypubíllinn kominn úr ánni „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Vill afnema sektir við vændiskaupum Telja gervigreind hafa verið beitt í þróaðri netárás Dró sambýliskonu sína eftir jörðinni og beitti ítrekað ofbeldi „Mjög er horft til þess sem Bandaríkjaforseti segir“ Íslendingar munu keppa um Bermúdaskálina Ein þurft að þjónusta 80 kaupendur á þremur sólarhringum Þór lætur Bandero eiga sig og sinnir öðrum málum „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Funda um niðurstöðu héraðsdóms Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Sögufræg Douglas DC 6 á leiðinni til Reykjavíkur Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Átök í hvalveiðiumræðunni og fælingarmáttur lögregluaðgerða Þrjú sveitarfélög á þremur kjörtímabilum „Þetta er eins og á tónlistarhátíð“ Kristrún og Þorgerður á NATO-fundinum í Ankara Brúnni lokað eftir að steypubíll hafnaði í Þjórsá Þau sóttu um starf sveitarstjóra á Skagaströnd Sjá meira