Innlent

Óslitin mannmergð

Mikill mannfjöldi er samankominn á Ingólfstorgi
MYND/Vísir

Miðbær Reykjavíkur er sneisafullur af fólki sem tekur nú þátt í dagskrá kvennafrídagsins. Mannmergðin er þvílík að ef horft er frá horni Skólavörðustígs og Bankastrætis, bæði upp að Hallgrímskirkju og niður að Lækjartorgi, er mannmergðin algjörlega óslitin. Talið er að að minnsta kosti þriðja tug þúsunda séu samankomin í miðbænum. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins vill koma því á framfæri að það er sjúkrabíll staðsettur við gamla Landsímahúsið, ef einhver þarf á hjúkrunarþjónustu að halda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×