Innlent

Kínverskum ferðamönnum fjölgar

Fjöldi kínverskra ferðamanna sem koma hingað til lands hefur sextánfaldast á fjórum árum. Gert er ráð fyrir að þessi þróun haldi áfram næstu árin og jafnvel áratugina og segja Flugleiðamenn að þessi stöðuga fjölgun opni jafnvel möguleika á beinu flugi milli landanna. Fyrir fjórum árum komu fimm hundruð kínverskir ferðamenn hingað til lands, í ár verða þeir yfir átta þúsund. Gunnar Már Sigurfinnsson, markaðsstóri Flugleiða, segir að í fyrsta lagi.........ekkert mál. Nú ferðast um 25 milljónir Kínverja út fyrir landsteinana á ári, en gert er ráð fyrir því að sú tala fjórfaldist á fimmtán árum og verði eitt hundrað milljónir árið 2020. Flugleiðir gera ráð fyrir því að Kínverjar muni verða stór hluti af auknum fjölda ferðamanna til Íslands næstu árin og það opni jafnvel möguleika á að fara að fljúga þangað. En það er ekki nóg að koma ferðamönnunum hingað í þúsundatali og kínverskir ferðamenn þurfa mikla þjónustu. Aðeins einn kínverskumælandi Íslendingur hefur útskrifast frá Leiðsögumannaskóla Íslands. Hann segir mikilvægt að fleiri mennti sig á þessu sviði ef takast eigi að sinna öllum þessum fjölda ferðamanna sem skyldi. Hann sjálfur hefur meira en nóg að gera. Steingrímur Þorbjarnarson ákvað strax í menntaskóla að hann ætlaði til Kína að læra. Þá var það hending ef Kínverji sást á Íslandi, en hann var samt sannfærður um að kínverskukunnáttan ætti eftir að gagnast honum vel, enda var uppsveiflan mikla í Kína þá að byrja. Það er enda eftirspurn eftir honum, hann hefur starfað sem dómtúlkur og hefur einnig túlkað mikið á Kárahnjúkum, auk þess sem hann hefur ferðast með hundruð kínverskra ferðamannahópa um Ísland. Steingrímur segir Kínverjana oft varla vita hvar þeir eru í heiminum þegar þeir koma og sækist oft eftir öðrum hlutum en aðrir ferðamenn. Steingrímur hefur sjálfur skrifað og gefið út kynningarefni um Ísland á kínversku í nokkur ár. Markaðsstjóri Flugleiða sagðist telja að það eigi eftir að bjargast að finna hæft starfsfólk til að sinna Kínverjunum



Fleiri fréttir

Sjá meira


×