Innlent

Svalbarðadeila í hnút

Ef samningar nást ekki við Norðmenn um stjórn fiskveiða við Svalbarða innan mjög skamms tíma er ekki annað fyrir stjórnvöld að gera en að höfða mál fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag, segir framkvæmdastjóri LÍÚ. Íslenskir útvegsmenn telja brýnt að niðurstaða fáist sem fyrst í deilum um rétt til fiskveiða á Svalbarðasvæðinu. Norðmenn hafa einhliða tekið að sér stjórn fiskveiða á svæðinu þrátt fyrir að Íslendingar, Rússar og Evrópusambandið telji sig hafa jafnan rétt á við Norðmenn. Íslensk skip hættu veiðum á svæðinu í fyrra eftir að hafa veitt upp í kvóta sem Norðmenn úthlutuðu þeim. Það gerðu þau þar sem útvegsmenn óttuðust að Norðmenn tækju þau fyrir fiskveiðibrot og drægju útgerðirnar fyrir dómstóla. Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, segir tíma til kominn að niðurstaða fáist í deilurnar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×