Finnast löngu eftir lát sitt 21. október 2005 00:01
Nokkrum sinnum á ári finnst fólk á heimilum sínum í Reykjavík eftir að hafa legið þar látið í vikur eða jafnvel mánuði áður en einhver veitir því athygli. Í vikunni fannst maður á áttræðisaldri látinn á heimili sínu í miðbæ Reykjavíkur. Talið er að hann hafi látist fyrir þremur vikum síðan. Þetta er ekki einsdæmi því ekki er nema hálfur mánuður síðan einstaklingur sem hafði verið látinn í fimm daga fannst á heimili sínu. Þá eru aðeins um tveir mánuðir síðan annar einstaklingur fannst þremur mánuðum eftir andlát hans. "Þettu eru nú aðallega einstæðingar," segir Hörður Jóhannesson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík. "Þetta eru sjúklingar, fólk sem er ekki í vinnu, jafnvel öryrkjar og fólk sem virðist vera félagslega einangrað og er ekki í reglulegum samskiptum við aðra." Hörður segir það gerast nokkrum sinnum á ári að einstaklingar finnist á heimilum sínum vikum eftir andlát sitt. Þeir sem helst tilkynna að eitthvað sé athugavert eru nágrannar, vinir og fjarskyldir ættingjar. Margir þeirra sem finnast látnir eftir langan tíma búa í nokkuð miklu návígi við aðra, eins og í fjölbýlishúsum. Hafdís Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri Þjónustumiðstöðvar Miðbæjar og Hlíða segir suma sem búa eina fá litla þjónustu inn á heimili sín. Hjá sumum kemur aðeins manneskja til að þrífa á hálfs mánaðarfresti og stundum engir þess á milli. "Yfirleitt er regla að hringja og reyna að hafa uppi á fólki. Í langflestum tilvikum er það svo að fólk gleymir að láta vita að það vilji ekki þjónustu þennan dag," segir Hafdís. Hjá þjónustumiðstöðvunum í Reykjavík er unnið að því að byggja upp öflugt hverfastarf. Oft og tíðum hefur fólk misst tengsl við fjölskylduna og því getur verið mikilvægt að huga að nágrönnum sínum.
Fréttir Innlent Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Fjórir í gæsluvarðhald eftir hraðsendingu frá Þýskalandi Ekkert svigrúm í tengslum við kjarasamninga og tvísýnt með framhaldið Lét ákærða vita af andlátinu: „Hann var í miklu uppnámi“ „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Flutningabíll valt á Þverárfjallsvegi sem er lokaður Lægðin grynnist í dag en von á annarri Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Sjá meira