Innlent

Íslandsbanki lækkar ekki lánin

Íslandsbanki ætlar ekki að lækka lánahlutfall sitt þó að hækkun fasteignaverðs hafi stöðvast og lækki hugsanlega á næstunni. Vala Pálsdóttir, upplýsingafulltrúi hjá Íslandsbanka, segir að starfsmenn bankans fylgist náið með fasteignamarkaðnum og útlánareglurnar séu stöðugt til endurskoðunar. Greiningardeild Íslandsbanka hafi spáð verðhækkun fasteigna en fasteignaverðið hafi stöðvast. "Við viljum sjá frekari þróun áður en við grípum til aðgerða," segir Vala. Algengustu íbúalánin hjá Íslandsbanka nema sextíu til áttatíu prósentum af heildarverði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×