Innlent

Dæmdir fyrir rán

Maður um tvítugt var í gær dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness í tveggja mánaða fangelsi fyrir að ræna verslunina 10/11 í Engihjalla í Kópavogi í apríl. Þar að auki hlaut hann og félagi hans í ráninu sex mánaða skilorðsbundinn dóm til þriggja ára. Mennirnir ógnuðu afgreiðslustúlku með skrúfjárni og létu hana opna peningahirslur og tóbaks-kassa. Höfðu þeir um 20 til 30 þúsund krónur upp úr krafsinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×