Hættir að taka við sjúklingum 23. október 2005 17:57
Sjálfstætt starfandi hjartasérfræðingar íhuga nú að segja upp samningi við Tryggingastofnun ríkisins, að sögn Axels Sigurðssonar sem sæti á í stjórn Félags sjálfstætt starfandi hjartalækna. Þeir eru farnir að stöðva bókanir þar til eftir áramót, nema mikið liggi við. Þetta á sér einnig stað í öðrum sérfræðigreinum. Þá eru sjálfstætt starfandi sérfræðilæknar í þann mund að fækka viðverudögum sínum á stofu. Ástæða þessa er sú að einingakvóti sá sem sjálfstætt starfandi sérfræðilæknar hafa, samkvæmt samningi við Tryggingastofnun ríkisins, er að mestu uppurinn. Ef læknar fara fram úr þessum kvóta þurfa þeir að gefa TR fimmtíu prósenta afslátt af sinni vinnu. „Málum hefur verið þannig háttað að hafi sumar sérfræðigreinar ekki nýtt sinn kvóta að fullu þá hafa aðrar sérfræðigreinar fengið þann ónýtta kvóta," segir Axel. „Það sem er óvenjulegt núna er að útreikningar benda til þess að flestar sérgreinar fullnýti kvótann og fari fram úr honum. Ákvæði í samningnum kveður á um að ef heildarkvótinn stefnir fram úr þá sé kominn á 100 prósenta afsláttur, sem þýðir að Tryggingastofnun borgar ekki krónu. Í þetta stefnir nú." Axel segir að Tryggingastofnun hafi sent sérfræðilæknum bréf í sumar og bent þeim á að draga úr þjónustunni þar sem stefni í óefni. Ekki sé við stofnunina að sakast, hún fari eftir samningum. Hins vegar hafi eftirspurn eftir þjónustu margra sérfræðigreina aukist verulega og læknar séu aðeins að bregðast við henni.
Fréttir Innlent Mest lesið Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Innlent Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda Innlent „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Innlent Fréttaútsending stöðvuð til að uppræta áróður Orbáns Erlent Bandaríkin hefja árásir á Íran á ný Erlent Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Innlent Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Innlent Spurning með sálina Innlent Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu Innlent Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Innlent Fleiri fréttir Lentu í slysi á flugbraut í Kirgistan: „Börn farin að gráta og fullorðnir farnir að öskra“ Sexa lent í Reykjavík í fyrsta sinn í áratugi Kominn með nóg af áfengisauglýsingum áhrifavalda „Hafa útsendara á sínum snærum á Íslandi“ Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Kastriot og Sævar ákærðir í Dettifoss-málinu NATO-ríki auki stuðning við Úkraínu Spurning með sálina Girnist enn Grænland, vændiskaup og áfengisauglýsingar áhrifavalda Viðgerð á mótor Herjólfs á áætlun Heilsufarsskoðanir skuli framkvæmdar að lágmarki fjórum sinnum Yngstu fara flestar ferðir Steypubíllinn kominn úr ánni „Ég fer og kíki og þá er þarna þetta stærðarinnar lambalæri“ Vill afnema sektir við vændiskaupum Telja gervigreind hafa verið beitt í þróaðri netárás Dró sambýliskonu sína eftir jörðinni og beitti ítrekað ofbeldi „Mjög er horft til þess sem Bandaríkjaforseti segir“ Íslendingar munu keppa um Bermúdaskálina Ein þurft að þjónusta 80 kaupendur á þremur sólarhringum Þór lætur Bandero eiga sig og sinnir öðrum málum „Draga mig, mitt nám og minn starfsferil niður í svaðið“ Funda um niðurstöðu héraðsdóms Evru-Ísland óskalandið hvenær kemur þú? Sögufræg Douglas DC 6 á leiðinni til Reykjavíkur Nauðgaði konu í lok ferðar þeirra um Ísland Átök í hvalveiðiumræðunni og fælingarmáttur lögregluaðgerða Þrjú sveitarfélög á þremur kjörtímabilum „Þetta er eins og á tónlistarhátíð“ Kristrún og Þorgerður á NATO-fundinum í Ankara Sjá meira