Ágreiningur stjórnarflokka 23. október 2005 17:50 „
Heilbrigðisráðherra verður að svara því hvaða rök hann hefur fyrir afnámi bensínstyrks til öryrkja. Okkur þykir þetta ekki sérlega skynsamlegt,“ segir Arnbjörg Sveinsdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks. Nokkuð hefur verið um ágreiningsmál milli stjórnarflokkanna síðustu daga og má þar nefna tillögu í fjárlögum um að leggja af bensínstyrk til öryrkja. „Það er ekkert launungarmál að mörgum okkar þótti það ekki vera rétt skref hjá heilbrigðisráðherra,“ bætir Arnbjörg við. Ólík viðhorf stjórnarflokkanna í öðrum málum hafa einnig verið áberandi. Flokksformennirnir hafa báðir tjáð sig um einkavæðingu Landsvirkjunar, þar sem Geir Haarde gaf til kynna á landsfundi Sjálfstæðisflokksins að fljótlega yrði timabært að huga að einkavæðingu í raforkumálum. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra telur að ekkert liggi á í þeim efnum. Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokks, segir Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra vera að fara yfir málefni öryrkja. „Hann hefur hefur átt viðræður við Öryrkjabandalagið og mun hafa þær til hliðsjónar áður en fjárlagafrumvarpið verður að lögum,“ segir Siv. „Það er ljóst að við erum þeirrar skoðunar að ástandið á fjölmiðlamarkaðnum sé þannig að einhverjar reglur verði að koma til,“ segir Arnbjörg Sveinsdóttir. Frumvarp að fjölmiðlalögum er enn eitt bitbeinið milli flokkanna þar sem sjálfstæðismenn vilja setja strangari takmarkanir við eignarhald en mælt var með í skýrslu þverpólitískrar nefndar í fyrra. Halldór Ásgrímsson segir að hann gangi út frá því að skýrsla nefndarinnar verði höfð til grundvallar frumvarpi til fjölmiðlalaga.
Fréttir Innlent Mest lesið Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Þúsundir syrgja í Tehran og Trump segir æðstaklerkinn ljúga Erlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Innlent Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Innlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Innlent „Þurfum að huga að forvörnum“ Fréttir Fleiri fréttir Svifvængaflugslys við Reynisfjall Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Átök í Sósíalistaflokknum, þinglokaviðræður og síðasti dagur Litlu kaffistofunnar Veiðigjöld ekki á dagskrá þingfundar í dag Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Sjá meira