Innlent

Ágreiningur stjórnarflokka

„Heilbrigðisráðherra verður að svara því hvaða rök hann hefur fyrir afnámi bensínstyrks til öryrkja. Okkur þykir þetta ekki sérlega skynsamlegt,“ segir Arnbjörg Sveinsdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðis­­flokks. Nokkuð hefur verið um ágreiningsmál milli stjórnarflokkanna síðustu daga og má þar nefna tillögu í fjárlögum um að leggja af bensínstyrk til öryrkja. „Það er ekkert launungarmál að mörgum okkar þótti það ekki vera rétt skref hjá heilbrigðisráðherra,“ bætir Arnbjörg við. Ólík viðhorf stjórnarflokkanna í öðrum málum hafa einnig verið áberandi. Flokksformennirnir hafa báðir tjáð sig um einkavæðingu Landsvirkjunar, þar sem Geir Haarde gaf til kynna á landsfundi Sjálfstæðisflokksins að fljótlega yrði timabært að huga að einkavæðingu í raforkumálum. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra telur að ekkert liggi á í þeim efnum. Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokks, segir Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra vera að fara yfir málefni öryrkja. „Hann hefur hefur átt viðræður við Öryrkjabandalagið og mun hafa þær til hliðsjónar áður en fjárlagafrumvarpið verður að lögum,“ segir Siv. „Það er ljóst að við erum þeirrar skoðunar að ástandið á fjölmiðlamarkaðnum sé þannig að einhverjar reglur verði að koma til,“ segir Arnbjörg Sveinsdóttir. Frumvarp að fjölmiðlalögum er enn eitt bitbeinið milli flokkanna þar sem sjálfstæðismenn vilja setja strangari takmarkanir við eignarhald en mælt var með í skýrslu þver­pólitískrar nefndar í fyrra. Halldór Ásgrímsson segir að hann gangi út frá því að skýrsla nefndarinnar verði höfð til grundvallar frumvarpi til fjölmiðlalaga.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×