Innlent

1,8% atvinnuleysi í landinu

Tvö þúsund og níu hundruð manns voru að meðaltali án vinnu hér á landi á þriðja ársfjórðungi ársins, eða 1,8% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 1,2% hjá körlum en 2,4% hjá konum. Atvinnuleysið var mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára, eða 3,5%. Á sama tímabili í fyrra mældist atvinnuleysi 2,6%, eða tæplega einu prósenti meira en nú. Fjöldi starfandi á þriðja ársfjórðungi 2005 var 164 þúsund manns og fjölgaði um 6.000 frá sama tíma á síðasta ári.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×