Aksturskilyrði slæm víða um land 27. september 2005 00:01
Stór fjárflutningabíll fauk út af veginum og valt á hliðina í Svínadal í Dölum í morgun og ekki vildi betur til en svo að lögreglubíll, sem kom á vettvang, fauk líka út af veginum. Vegagerðin og veðurstofan vara við viðsjárverðum akstursskilyrðum víða um land í dag. Tveir menn, sem voru í fjárflutningabílnum slösuðust og voru fluttir á heilsugæslustöðina í Búðardal, en hvorugur þeirra er alvarlega meiddur. Víðar hafa ökumenn lent í vandræðum þótt fréttastofu Bylgjunnar og Stöðvar 2 sé ekki kunnugt um fleiri slys. Það hefur verið bálhvasst á sunnanverðu Snæfellsnesi í morgun og laust fyrir klukkan níu rofnaði raflínan frá Vegamótum yfir Nesið þannig að rafmagnslaust varð í Ólafsvík, á Hellissandi og Rifi. Viðgerðarmenn eru nú á Fróðárheiði við mjög erfið skilyrði að gera við línuna, en dísilrafstöðvar eru keyrðar í Óalfsvík. Þær anna hvergi nærri raforkuþörfinni þannig að rafmagn er skammtað. Á Vestfjörðum er hvassviðri og ófært um Hrafnseyrarheiði og Eyrarfjall og vegagerðarmenn urðu að hætta við mokstur um Klettsháls vegna ofviðris. Lágheiði er ófær fyrir norðan og éljagangur er á norðurleiðinni á Holtavörðuheiði og Öxnadalsheiði. Krapi og hálka eru á Mývatnsheiði og Mývatns- og Mörðudalsöræfum. Á Austurlandi er hálka á Fjarðarheiði og upp í Kárahnjúka. Þá varar Veðurstofan við stormi á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra og einnig má búast við hvössum vindhviðum á Kjalarnesi og um landið norðvestanvert, einkum á fjallvegum og sunnanverðu Snæfellsnesi. Og það er líka spáð stormi um allan sjó nema rétt á suðausturmiðum.
Fréttir Innlent Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Mette Frederiksen leitar yfir miðju Erlent Fleiri fréttir Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sjá meira