Bryant og Jackson hefja störf 20. september 2005 00:01
Lítið hefur heyrst í Kobe Bryant síðan Phil Jackson tók við liði Los Angeles Lakers í vor, en í gær tjáði hann sig í fyrsta sinn opinberlega um ráðningu Jackson og framtíðaráform liðsins. Bryant var frekar þurr á manninn í viðtalinu og sagði samband sitt við Jackson á faglegum nótum. Phil Jackson gerði lið Los Angeles Lakers að þreföldum meisturum í byrjun áratugarins, en þegar hann hætti með liðið eftir tímabilið 2004, lét hann ýmis vel valin orð falla um Kobe Bryant í bók sem hann gaf út og bar heitið "Síðasta tímabilið". Þar sagði hann að Kobe Bryant væri illþjálfanlegur og sjálfselskur eiginhagsmunaseggur og í kjölfarið urðu litlir kærleikar þeirra á milli. Sú tíðindi að Jackson tæki aftur við Lakers komu því eins og skrattinn úr sauðaleggnum þegar þau voru tilkynnt fyrir réttum fimm mánuðum síðan, en Bryant tjáði sig lítið um samband sitt við Jackson í viðtalinu í gær. "Við erum báðir mjög ákveðnir í að sigra og erum mjög einbeittir þegar kemur að því að ná árangri með þetta lið," sagði hann, en neitaði að tjá sig frekar um samstarfið við Jackson. Bryant hefur nú stundað þrotlausar æfingar í allt sumar, sem er hið fyrsta í mörg ár þar sem hann fær frí að einhverju leiti, því eins og allir vita komst Lakers-liðið ekki í úrslitakeppnina á síðasta tímabili. "Ég hef verið að vinna í að styrkja mig og bæta mig á öllum sviðum leiksins. Það mun aðeins gera mér gott að fá einu sinni svona gott frí," sagði Bryant, sem hefur stundað að vakna klukkan fjögur á morgnana til að fara út að hlaupa.
Körfubolti Mest lesið Maður dagsins á HM: Af hverju fór Messi að gráta og átti að reka hann út af? Fótbolti Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Fótbolti Allt í bál og brand í Formúlu 1 Formúla 1 Tárvotur Messi jafnaði HM markametið með þrennu Fótbolti Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Golf „Ísland ætti ekki að eiga kylfing sem spilar svona vel“ Golf Portúgal - Austur-Kongó | Ronaldo byrjar og slær met Fótbolti Kristófer og Guðrún eignuðust son Körfubolti Efast um Frey og segir hann hvorki fyrsta, annan né þriðja kost Fótbolti Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Körfubolti Fleiri fréttir Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Þjálfaraskipti hjá Sveindísi Frábær byrjun Englendinga Komust í undanúrslit eftir framlengdan leik Sýndi miklar tilfinningar eftir fyrsta markið Þjóðhátíðarsigur í Þorlákshöfn Portúgal - Austur-Kongó | Ronaldo byrjar og slær met ÍR stöðvaði Gróttu og Kári kom Fylki í annað sæti Íslendingarnir fengu mjög góð ráð frá Patrick Reed Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Bjó til sex mörk Fram á gamla heimavellinum Kristófer og Guðrún eignuðust son Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Efast um Frey og segir hann hvorki fyrsta, annan né þriðja kost Evrópudagskrá íslensku liðanna klár Vestri gæti farið til Búlgaríu eða Írlands Mourinho hringdi í Silva sem samdi til tveggja ára Ísraelskt lið bíður Víkinga Maður dagsins á HM: Af hverju fór Messi að gráta og átti að reka hann út af? Sjáðu mörkin í Víkinni, sturlunina í Garðabæ og Viktor tækla Val Allt í bál og brand í Formúlu 1 „Ísland ætti ekki að eiga kylfing sem spilar svona vel“ Freyr ráðinn þjálfari Rosenborg Tárvotur Messi jafnaði HM markametið með þrennu Haaland í ham er Noregur hóf HM á sigri „Tvær stórar ákvarðanir sem féllu á móti okkur“ „Aldrei stressaður um að þeir myndu jafna“ Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Emil: Byrjaði brösulega hjá okkur Sjá meira