Liðkað fyrir erlendu vinnuafli 6. september 2005 00:01
Erfiðlega gengur að fá leyfi fyrir erlendu vinnuafli í störf sem Íslendingar vilja ekki vinna. Forstjóri Vinnumálastofnunar segir að úrbóta sé að vænta. Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, segir ríkið hafa mörgum skyldum að gegna við að flytja inn fólk hingað til lands og því hægara sagt en gert að hleypa hér inn fólki án þess að gera nokkrar ráðstafanir. Gissur segir að ekki megi gleyma að um fólk sé að ræða en ekki einungis vinnuafl. Því sé að mörgu að huga eins og aðbúnaði, hugsanlegri íslenskukennslu, húsnæði og öðru sem lýtur að daglegu lífi og þjóðfélagsþáttöku. Gissur segir þó Vinnumálastofnun vera með í athugun um þessar mundir hvort ekki sé á einhvern hátt hægt að einfalda hlutina vegna gríðarlegs skorts og eftirspurnar eftir starfsfólki til að mynda í byggingarvinnu víðs vegar um landið, aðallega þó á höfuðborgarsvæðinu. Gissur segir Vinnumálastofnun hafa áhuga á að auðvelda fyrirtækjum að fá til sín starfsmenn af Evrópska efnahagssvæðinu og þar með að geta ráðið þá samkvæmt íslenskum reglum. Ekki er lagt í að svo gæti orðið. Gissur segist vona að þetta geti gerst allra næstu daga og verið sé að vinna að þessu í samvinnu við hlutaðeigandi stofnanir og ráðuneyti. Gissur segir ástæðu þess að brugðist sé við nú gríðarlegan skort á starfsfólki á ýmsum sviðum. Þegar svo mikil þensla sé, sérstaklega í byggingariðnaði og fleiri slíkum greinum, geti nokkrar vikur verið langur tími og verið sé að reyna að bregðast við gagnrýnisröddum.
Fréttir Innlent Mest lesið Afdrif Hörpunnar enn á huldu Innlent Spænska ríkissjónvarpið vill að símakosningin verði yfirfarin Erlent „Vinnubrögð sem maður er ekki vanur“ Innlent Dæmi um að tvær fjölskyldur deili einni au pair Innlent Grindvíkingar fá að gista í húsunum sem þeir seldu Innlent Sérstakar hleranir og símtölin sem gætu alltaf orðið til Innlent Verði að kunna íslensku til að geta hjúkrað Innlent Getur víða farið yfir tuttugu stig Veður Tveir menn handteknir eftir að hafa komið sér fyrir í sameign húss Innlent RÚV muni óska eftir upplýsingum frá EBU um símakosninguna Innlent Fleiri fréttir Rapyd sé íslenskt fyrirtæki með kennitölu frá 1983 RÚV muni óska eftir upplýsingum frá EBU um símakosninguna Fimm bjargað úr sjónum eftir að skemmtibát hvolfdi „Skiptir máli að við séum öll að tala sama tungumál“ Göngubrúin sett upp í nótt og Sæbrautin lokuð á meðan Brýna fyrir eigendum að skilja hunda ekki eftir í bílum Hársbreidd frá hitameti í borginni Grindvíkingar fá að gista heima í sumar og hjúkrunarfræðingar vilja hertar reglur „Vinnubrögð sem maður er ekki vanur“ Forsetahjónin á leið á heimssýninguna í Japan Grindvíkingar fá að gista í húsunum sem þeir seldu Dæmi um að tvær fjölskyldur deili einni au pair Vill að háskólinn laði til sín landflótta fræðimenn frá Bandaríkjunum Afdrif Hörpunnar enn á huldu Sérstakar hleranir og símtölin sem gætu alltaf orðið til Verði að kunna íslensku til að geta hjúkrað Tveir menn handteknir eftir að hafa komið sér fyrir í sameign húss Segist ekki taka hagsmuni sela fram yfir hagsmuni íþrótta Saumandi hressar og skemmtilegar bútasaumskonur Hundur drapst af völdum hitaslags á höfuðborgarsvæðinu Besta maíveður í manna minnum og ungir ofurhugar Varað við bikblæðingum um land allt Líþíumrafhlaða líkleg orsök eldsins Gullfallegt fley Getty-kóngsins við Reykjavíkurhöfn Tilraun með ræktun hveitis á Íslandi gefur góð fyrirheit Grunaðir um að neyða pilt upp í bíl og gefa honum rafstuð Gegndarlaus áróður hafi tryggt gott gengi Ísraels Ekki hissa á góðu gengi Ísrael og innsetningarmessa páfans Segja kristnar kirkjur ekki geta staðið hjá Staðan í hagkerfinu og alþjóðamálin Sjá meira