Innlent

Banaslys í hellusteypufyrirtæki

Banaslys varð í hellusteypufyrirtæki við Vagnhöfða í Reykjavík um miðjan dag í gær þegar maður á þrítugsaldri féll ofan í síló sem var fullt af sandi. Maðurinn grófst ofan í sandsílóið og var hann látinn þegar hann náðist upp. Fulltrúar Vinnueftirlitsins og rannsóknardeildar lögreglunnar rannsaka tildrög slyssins. Ekki er hægt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×