Innlent

Barnastarf kirkjunnar hefst í dag

Barnastarf kirkjunnar hefst í dag í flestum kirkjum höfuðborgarsvæðisins en einnig víða um land. Fimmtán til tuttugu þúsund börn og fullorðnir koma að barnastarfi Þjóðkirkjunnar á hverju ári. Til að stuðla að markvissri og skemmtilegri fræðslu hafa kirkjurnar fengið í hendur nýtt fræðsluefni fyrir sunnudagaskóla, þar sem lögð er áhersla á fjölskyldulíf, vináttu og samskipti við aðra. Samkvæmt Gallup telja rúmlega 70 prósent spurðra að Þjóðkirkjan sinni barnastarfi vel.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×