Innlent

Útlánageta getur tvöfaldast

Fjárfestingarfélagið Burðarás hverfur inn í Landsbankann annars vegar og Straum hinsvegar í mestu hræringum á íslenskum fjármálamarkaði sem um getur. Við þetta getur útlánageta Landsbankans tvöfaldast , en það jafngildir því að bankinn gæti lánað 800 milljarða króna. Helstu eignir Burðaráss sem renna til Landsbankans er tuttugu prósenta hlutur í sænska fjárfestingabankanum Carnegie og þrjátíu og sex prósenta hlutur í Marel, ásamt öðrum hlutum samtals að verðmæti 37 milljörðum króna. Afgangurinn að verðmæti ? króna rennur til Straums, en nýtt nafn þesss félags er Straumur Burðarás fjárfestingabanki. Þórður Már Jóhannesson, er forstjóri hins nýsameinaða félags, segir að fjáhaglega getir verið meiri en í dag og eykur því getu fyrirtækisins til að taka þátt í verkefnum heima og erlendis. Þá bæði sem lánveitendur  fyrir fyrirtæki og fagfjárfesta og sem eigin fjártakendur í verkefnum. Björgólfur Thor Björgólfsson, stjórnarformaður Burðaráss segir að tækifærin til að vaxa erlendis hafa stóraukist og hann segir þá vera að skoða verkefni erlendis þar sem þeir hafa oft þurft að vísa verkefnum frá vegna stærðar. Hann sagði að þeir væru að nálgast stóru i verkefnin. Eftir sameininguna verða hluthafar Landsbankans um 28 þúsund talsins. Formaður bankaráðs Landsbankans segir að þrátt fyrir gott árferði í íslensku viðskiptalífi verði að horfa til fjárfestingatækifæra erlendis. Björgólfur Guðmundsson segir eigið fé aukist um 60% sem þýðir sem gefur tækifæri til mikilst vxtar og í öðru lagi er að koma inn stór hluthafahópur sem gerir að verkum að markaður fyrir bréfin verður dýpri. Síðan gefur þetta tækifæri til að fara í stærri verkefni sem full þörf var að fara í. Hinn almenni hluthafi getur átt von á því að gengið hækki við þessa styrkingu og það er þeirra ávinningu. Magnús Kristinsson, stjórnarformaður Straums fjárfestingabanka segir að hinn almenni hluthafi græði eitthvað á þessu. Forsvarsmenn allra félaganna neituðu því að þessi sameining væri hluti af ákveðnu ferli til að sameinast Íslandsbanka. Greiningardeild KB banka telur sameiningu félaganna fær málið á næsta stig. Davíð Rúdólfsson hjá greiningardeild KB banka segir að spurninguna vera hvar þetta lendir á endum og hvort að þetta sé Straumur sem hefur undirtökin eða hvort Landsbankinn komi inn í á seinni stigum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×