Innlent

Mótmæli við Kárahnjúka

Fimmtán manns, flestir útlendingar, fóru inn á stíflusvæðið hjá Kárahnjúkavirkun í hádeginu í dag og stöðvuðu umferð að svæðinu í mótmælaskyni við framkvæmdirnar. Þeir hlekkjuðu sig við vinnuvélar og lögðu bílum þvert yfir veginn að Steypustöðinni til að vörubílar kæmust hvorki að né frá stíflusvæðinu. Vinna við gangagerðina hefur þó haldið áfram, enda beinast aðgerðirnar aðeins að stíflusvæðinu. Lögreglumenn frá Egilsstöðum eru komnir á svæðið en enginn hefur verið handtekinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×