Fyrsti sigur ÍA á KR í 12 ár 8. júlí 2005 00:01
Skagamenn unnu dýrmætan 0-2 sigur á KR-vellinum í gær og sendu Vesturbæjarliðið niður í neðri hluta deildarinnar. KR hefur unnið aðeins 1 af síðustu sjö leikjum og ekkert annað en fallbarátta virðist vera framundan.Bæði liðin það sem af er móti, valdið miklum vonbrigðum og það var því búist við hörkuleik.Fyrri hálfleikur var ekki mikið fyrir augað en ef eitthvað var þá voru það gestirnir sem voru sterkari aðilinn. Lítið markvert gerðist þangað til að tæplega hálftími var liðinn, þá fengu KR-ingar hornspyrnu sem Skagamönnum tókst að hreinsa frá út á miðju þar sem Jökull Elísabetarson var staddur, hann tók við knettinum en værukærðin varð honum að falli því Hafþór Ægir Vilhjálmsson vann af honum boltann og geystist upp og setti boltann laglega framhjá Kristjáni í markinu. Einhverjir héldu víst að seinni hálfleikur yrði betri en sá fyrri en sú varð ekki raunin og það var ekki fyrr en eftir stundarfjórðung að líf færðist í leikinn. Þá hristi Hjörtur Hjartarson, varnarmann KR af sér á vítateigslínunni, sneri sér í átt að marki og var kominn í ágætis færi þegar Sölvi Sturluson klippti hann niður, að því er virtist inn í vítateig en Gylfi Orrason var ekki á sama máli og dæmdi aðeins aukarspyrnu og sleppti einnig að gefa Sölva í það minnsta gult spjald. Skömmu síðar urðu KR-ingar fyrir miklu áfalli, ef áfall skyldi kalla, þegar Bjarnólfi Lárussyni var vikið af velli fyrir að slá Reyni Leósson inn í vítateig KR. Eftir að hafa ráðfært sig við aðstoðardómarann þá lyfti Gylfi rauða spjaldinu á loft og heimamenn því einum færri. Eftir brottreksturinn var eins og að KR-ingar fylltust vonleysi enda hafði liðið nánast ekki skapað sér eitt einasta marktækifæri þær 63.mín. sem liðið hafði jafnmarga leikmenn inn á vellinum. Þegar leikurinn virtist vera að fjara út þá skoraði Igor Pesic stórkostlegt mark af um 60 m. færi og innsiglaði sigur gestanna. Pesic fékk boltann eftir útspark Kristjáns Finnbogasonar, lagði boltann fyrir sig og lét skotið ríða af yfir Kristján í marki KR. Reynir Leósson átti mjög góðan dag í vörninni hjá ÍA og hann sagði brottrekstur Bjarnólfs vera réttan: "Hann kýldi fyrst í magann á mér og þrumaði svo beint í punginn á mér, þetta var ekkert annað en rautt spjald. Ég hef spilað hér síðan 1998 en aldrei unnið hérna áður og það var kominn tími á þetta, við höfum núna unnið tvo leiki í röð í deildinni og vonandi erum við komnir á skrið." Reynir var mjög ánægður með síðara mark Skagamanna: "Pesic er bara 22 ára, mjög góður leikmaður og er að komast inn í boltann hér heima. Hann er mjög útsjónarsamur leikmaður." Kristján Finnbogason var að vonum ekki sáttur við leik KR: "Þetta var lélegt hjá okkur og ég tek þetta á mig. Við fórum ekki að taka á fyrr en við urðum manni færri og það er spurning hvort við eigum ekki bara að spila tíu í næstu leikjum? Þetta verður mjög erfitt sumar og við verðum að næla okkur í stig til þess að lenda ekki í tómu tjóni", sagði Kristján.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Fyrstur til að fá rautt fyrir að hylja munninn en Tyrkir úr leik á HM Fótbolti Leið Englands algjör martröð eins og staðan er Fótbolti Gervigreindar-Maradona hneykslar marga í Argentínu Fótbolti Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Fótbolti Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Golf Varði mark Víðis og Sindra en er mættur á HM Fótbolti Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Enski boltinn Sjö stórmeistarar berjast um sigurinn Sport Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Fótbolti Tyrkir í sárum: „Biðjum alla tyrknesku þjóðina afsökunar“ Fótbolti Fleiri fréttir Bannað að fara í brúðkaup en skoraði sjö mörk og setti met Leið Englands algjör martröð eins og staðan er Amanda allt í öllu í frábærri endurkomu Varði mark Víðis og Sindra en er mættur á HM Ronaldinho gæti tekið fram skóna 46 ára gamall Tyrkir í sárum: „Biðjum alla tyrknesku þjóðina afsökunar“ „Búinn að þroskast um fimm ár á þessu eina móti“ Sjö stórmeistarar berjast um sigurinn Flugu í 22 tíma á rellu án klósetts til að sjá Skota á HM Maður dagsins á HM: „Svikari“ af miklum markvarðaættum Gervigreindar-Maradona hneykslar marga í Argentínu Fyrstur til að fá rautt fyrir að hylja munninn en Tyrkir úr leik á HM Cunha með tvö og Brassar höfðu það náðugt Ætlar að sýna öllum heiminum hvað systir hans heitin sá í honum Dagskráin: Spennan magnast á Opna bandaríska risamótinu í golfi Zlatan trúir því að Bandaríkin geti orðið heimsmeistari Marokkómenn skoruðu sigurmarkið eftir 71 sekúndu Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Skotar og Marokkóar berjast um sæti í 32-liða úrslitum Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Leiknisliðsins Bandaríkjamenn með fullt hús eftir tvo leiki Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn FIFA breytti því hvernig stöðutöflur virka á HM Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Gamla Íslendingafélagið á barmi gjaldþrots Ólympíuverðlaunahafi í langt bann vegna lyfjamisnotkunar Gunnlaugur Árni hefur lokið keppni á US Open Sjá meira