Sport

Sigþór lék handarbrotinn

Valsarinn Sigþór Júlíusson komst í hann krappann í leik gegn KR í fyrrakvöld er hann braut bein í handabaki í fyrri hálfleik. "Ég dett illa á höndina eftir návígi í lok fyrri hálfleiks og brýt bein í handabakinu. Ég fór í skoðun í dag og fékk spelku sem ég vonast til að geta leikið með. En ég lét lækninn skoða þetta í hálfleiknum og hann batt fast um höndina þannig að ég gat klárað leikinn. Það var reyndar allt í lagi að klára leikinn enda lenti ég ekkert í neinu slæmu atviki í seinni hálfleik. Það er þó vissulega erfitt að spila með aðra höndina brotna en það er samt ekkert sem maður hugsar um á meðan leiknum stendur. Ég hefði látið Willum vita ef ég myndi ekki treysta mér áfram en það gekk allt vel og ég þurfti aldrei að biðja um skiptingu," segir Sigþór. Hann ætlar að láta það ráðast á morgun hvort hann treysti sér til að leika gegn Þrótti annað kvöld.Sigþór segir að hann hefði örugglega haldið áfram sama hver andstæðingurinn væri. "En það skemmdi ekkert fyrir að það var KR. Ég vildi alls ekki fara út af í svona leik. Leikir þessara liða eru líka alltaf stórir og maður vill ekki missa af þeim," segir Sigþór sem lék í sjö ár með KR áður en hann skipti yfir í Val fyrir núverandi tímabil. Hann reyndar lék með Val í tvö ár áður en hann gekk til liðs við KR. En hann segir að hafi verið gott að vinna sigur á gömlu félögunum. "En það er auðvitað gott að vinna alla leiki. Við urðum líka að fá sigurleik nú eftir að hafa tapað síðustu tveimur leikjum til að koma okkur aftur af stað."Forysta FH í Landsbankadeildinni er því enn sex stig en hefði verið níu ef Valur hefði ekki unnið KR í gær. "Jú, það var auðvitað gott að forskot þeirra hafi ekki aukist en við þurfum fyrst og fremst að hugsa um okkar leik. Ef við höldum áfram að hala inn stigunum verðum við ánægðir og það væri ekki verra ef FH-ingar misstíga sig. Það segir sig sjálft að mótið er ónýtt ef þeir fá að komast upp með að vinna alla leiki."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×