Litlaust á Skaganum 30. júní 2005 00:01
Það var ljóst frá fyrstu mínútu að leikmenn ÍA ætluðu að selja sig dýrt gegn ÍBV í gærkvöld og voru leikmenn liðsins afskaplega duglegir og agaðir allan leikinn. Þeir voru verðlaunaðir með marki strax á 17. mínútu leiksins þar sem var að verki hinn ungi og bráðefnilegi Hafþór Ægir Vilhjálmsson. Þá skoraði hann með góðu skoti fyrir utan teig en þangað hrökk boltinn eftir að leikmenn ÍBV höfðu hreinsað hornspyrnu Dean Martin frá marki. Heimamenn héldu áfram að þjarma að marki ÍBV það sem eftir lifði leiks og bættu verðskuldað við marki stundarfjórðungi fyrir leikslok. Það gerði Andri Júlíusson, annar ungur leikmaður ÍA sem nýkominn var inn á sem varamaður, þegar hann lagði boltann framhjá Birki Kristinssyni í markinu eftir meistaralega sendingu Dean Martin. Mörkin hefðu hæglega getað orðið fleiri hjá heimamönnum en þeir voru einstaklega óheppnir með skot sín í leiknum í gær. Fótboltinn sem boðið var upp á í gær var í lágum gæðaflokki og augljóst að þarna eru á ferð tvö lið sem eiga í vandræðum í deildinni. Þrátt fyrir að hafa verkið nokkuð frá sínu besta voru Skagamenn mun markvissari í öllum sínum aðgerðum og hefðu á eðlilegum degi skorað mun fleiri mörk. Þeirra sprækastur var markaskorarinn Hafþór og fór hann oft illa með varnarmenn ÍBV. Þá spilaði Pesic líklega sinn besta leik í sumar og Dean Martin var gríðarlega duglegur í stöðu fremsta miðjumanns. Lið ÍBV var, eins og svo oft áður á útivelli í sumar, heillum horfið lengst af og var það aðeins þegar boltinn fór í gegnum Atla Jóhannsson á vinstri kanti sem að eitthvað gerðist í sóknarleiknum. Er það hér með fullyrt að Atli er einn af hættulegustu upphafsmönnum skyndisókna sem til er á landinu. En þegar horft er til þess að ÍBV lenti undir strax á 17. mínútu er með ólíkindum að sjá hversu aftarlega liðið spilaði það sem eftir lifði leiks. Flestir leikmanna liðsins eru afar takmarkaðir knattspyrnumenn sem geta þó á góðum degi farið langt á baráttu og eljusemi, en þegar kemur að hugmyndaauðgi í sókninni er liði Eyjamanna stórlega ábótavant.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Eins og að mennirnir sem stjórna Tindastóli séu að missa hausinn“ Körfubolti Egyptaland - Ísland 30-31 | Skoruðu síðustu fjögur mörkin og tryggðu sér sigur Handbolti „Þetta hliðarspor mun ekki breyta þeirri vegferð sem ég er á“ Íslenski boltinn Gagnrýnir Körfuboltakvöld: Samþykkja svona hegðun og afvegaleiða umræðuna Körfubolti Ferill Jake Paul í hættu Sport McIlroy þurfti að hætta eftir þrjár holur Golf Eldræða Arnars: „Hlaupa og senda fingurinn upp í stúku“ Körfubolti Blaðamannafundur KSÍ: Arnar valdi hóp sem mætir heimsmeisturunum Fótbolti Skrípamark kom í veg fyrir að Ronaldo yrði meistari í gær Fótbolti Gísli Þorgeir útskýrir fjarveru sína: „Ber ekkert nema virðingu fyrir landsliðinu“ Handbolti Fleiri fréttir Kæra komin á borð KKÍ vegna Kane Stjarnan - KR | Endurtekið efni? Uppselt á innan við þremur mínútum á þriðja úrslitaleikinn Manchester City - Crystal Palace | Heimamenn verða að vinna Dagur gat ekki stillt upp sínu sterkasta í tapi gegn Svíum Santos óskaði eftir starfslokum sem þjálfari Selfoss Birta mynd af „njósnara“ Southampton „Þetta hliðarspor mun ekki breyta þeirri vegferð sem ég er á“ Þróttur R. - Breiðablik 1-2 | Tíu Blikar tryggðu sig í átta liða úrslitin „Það var bara eins og kóngurinn væri mættur í bæinn“ Carrick eigi skilið að fá starfið Andri Lucas skrifar undir langtímasamning Þetta er svo asnalegt hjá Kane Ármann yngir upp um þrjátíu ár Egyptaland - Ísland 30-31 | Skoruðu síðustu fjögur mörkin og tryggðu sér sigur Tilkynntu komu Arnars til stórliðsins á meðan hann spilaði landsleik Brást illa við spurningu um svindl og sleit fundinum: „Sýndu smá virðingu“ Arnar velur tvo landsliðshópa: Viktor Bjarki fær kallið Blaðamannafundur KSÍ: Arnar valdi hóp sem mætir heimsmeisturunum „Þetta er allt annað Fram-lið“ Besta deildin áfram á Sýn Sport Dagbjartur einu skrefi frá Opna bandaríska Gagnrýnir Körfuboltakvöld: Samþykkja svona hegðun og afvegaleiða umræðuna Munu mæla með því við Ratcliffe að ráða Carrick Gísli Þorgeir útskýrir fjarveru sína: „Ber ekkert nema virðingu fyrir landsliðinu“ Skrípamark kom í veg fyrir að Ronaldo yrði meistari í gær Fyrsti samkynhneigði leikmaður NBA deildarinnar er látinn „Eins og að mennirnir sem stjórna Tindastóli séu að missa hausinn“ McIlroy þurfti að hætta eftir þrjár holur Heyrðu samskipti dómara í stærsta atviki tímabilsins Sjá meira