Léttir að hafa brotið ísinn 20. júní 2005 00:01 "
Það er enginn smá léttir að vera búinn að brjóta ísinn." sagði Grétar Ólafur Hjartarson, sóknarmaður KR, þegar Fréttablaðið hafði samband við hann í gær. Grétar hefur farið rólega af stað með KR-ingum það sem af er sumri og náði ekki að skora í sex fyrstu leikjum liðsins í Landsbankadeildinni. Hann náði þó loksins að setja mark á sunnudagskvöld þegar KR skellti Leikni 6-0 í 32 liða úrslitum VISA-bikars karla. "Já, maður fann alveg fyrir pressu en hún kom mest frá mér sjálfum. Ég var orðinn ansi óþolinmóður fyrst ég var ekki búinn að skora en nú er fyrsta markið loksins komið og það er vonandi að þetta fari að smella. Ég verð bara að trúa því að það gerist," sagði Grétar, sem gekk til liðs við KR fyrir sumarið frá Grindavík. Hann hefur verið einn besti leikmaður efstu deildar undanfarin ár og var markakóngur 2002 og sá næstmarkahæsti í fyrra. Eftir sex umferðir í fyrra var hann búinn að skora fjögur af fimm mörkum Grindvíkinga og margir bjuggust við enn fleiri mörkum frá honum hjá stærra liði. "Ég vissi það alveg þegar ég kom til KR að það gæti alveg gerst að byrjunin yrði erfið. Ég hef samt lent í því áður að skora ekkert í einhverjum fimm leikjum í röð, það lenda flestir í svona markaþurrð. Það er bara spurningin hvenær á tímabilinu það gerist, ég held að það sé ekkert verra að það sé svona strax í byrjun," sagði Grétar en hann var ánægður með leikinn gegn Leikni. "Leikurinn fór alveg eins og við lögðum upp. Spiluðum af krafti og settum nokkur mörk. Leiknismenn eru með ágætis lið og börðust á fullu en við náðum að skora snemma og leikur þeirra brotnaði niður við það."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Hártogið sem heimurinn hneykslast á: Hvað var hún eiginlega að hugsa? Fótbolti „Borgið okkur það sem þið skuldið okkur“ Körfubolti Rannsaka Íslendingafélagið Burton Albion Enski boltinn Zlatan sendi sænsku táningsstelpunni skilaboð eftir vítaklúðrið Fótbolti Fór úr ökklalið og fótbrotnaði í Lengjudeildarleik Íslenski boltinn Vængmennirnir fimm sem United vill losna við Fótbolti Liverpool kaupir Ekitike fyrir meira en níutíu milljónir evra Enski boltinn Sóknin enn vandamál: „Okkur skortir hraða“ Fótbolti Ætlar að vera lengi hjá Spurs: „Ég hef aldrei verið rekinn“ Fótbolti Dagskráin í dag: Stórleikur í Bestu-deildinni og lokadagur The Open Sport Fleiri fréttir Hnéð gott og getur spilað meira: „Ég er tilbúinn“ Íslenskur dómari í næst síðasta ráshópnum á Opna breska Hetja Þjóðverja í gær hefur sigrast tvisvar á krabbameini Fengu gullverðlaun sín loksins afhent 28 árum of seint Stelpurnar tryggðu sér fimmtánda sætið „Forréttindi fyrir okkur sem eru nærri honum að fá að verða vitni að þessu“ Fyrsta konan til að þjálfa karlalið í Brasilíu Fór úr ökklalið og fótbrotnaði í Lengjudeildarleik Hártogið sem heimurinn hneykslast á: Hvað var hún eiginlega að hugsa? Liverpool kaupir Ekitike fyrir meira en níutíu milljónir evra „Borgið okkur það sem þið skuldið okkur“ Búið að gera tilboð í Ederson og City horfir til Burnley Vængmennirnir fimm sem United vill losna við Dagskráin í dag: Stórleikur í Bestu-deildinni og lokadagur The Open Ætlar að vera lengi hjá Spurs: „Ég hef aldrei verið rekinn“ Rannsaka Íslendingafélagið Burton Albion Sóknin enn vandamál: „Okkur skortir hraða“ Segist viss um að Isak fari ekki fet Samkomulag í höfn og Rashford á leið til Barcelona Scheffler með örugga forystu fyrir lokadaginn Tíu Þjóðverjar tryggðu sæti í undanúrslitum eftir vító ÍR-ingar héldu út fyrir norðan Uppgjörið: KA - ÍA 2-0 | KA sendi KR í fallsæti Nýliðarnir halda áfram að styrkja sig „Stilltum sennilega upp sóknarsinnaðasta liði í sögu íslenskrar knattspyrnu“ „Við náttúrulega þurfum að skora mörk“ Ten Hag byrjar ekki vel hjá Leverkusen: „Mér er skítsama“ Uppgjörið: Breiðablik-Vestri 1-0 | Blikar náðu Víkingum á toppnum Daníel Tristan lagði upp mark í sigri Malmö Brotist inn hjá Platini og verðlaunin hurfu Sjá meira