Fram náði í stig á síðustu stundu 16. júní 2005 00:01
Framarar náðu jafntefli á Fylkisvelli í gær með marki fyrirliðans Ríkharðs Daðasonar í uppbótartíma en þetta var fyrsta mark liðsins í 282 mínútur. Fram að því virtist sem mark Björgólfs Takefusa frá því í fyrri hálfleik myndi duga Fylki til að vinna þriðja leikinn í röð. Leikurinn í Árbænum fór mjög rólega af stað og var nánast ekkert í gangi fyrsta halftima leiksins. Fylkismenn áttu þó ágætis samspil sín á milli og voru beittari til að byrja með. Eftir að þeir komust yfir með hörkuskoti Björgólfs Takefusa á 39. mínútu tóku þeir lífinu af fullmikilli ró og spilamennska liðsins í seinni hálfleik var ekki upp á marga fiska. Þeir virtust vera að bíða allan seinni hálfleikinn eftir því að leikurinn fjaraði út en þegar þrjár mínútur voru komnar yfir venjulegan leiktíma var þeim refsað af Ríkharði Daðasyni sem jafnaði fyrir Fram af stuttu færi eftir að heimamönnum mistókst að hreinsa boltann í burtu. Frömurum hefur gengið erfiðlega að skora í undanförnum leikjum og allt leit út fyrir þriðja leikinn í röð þar sem þeim tækist ekki að koma boltanum í mark mótherjanna þegar Ríkharður skoraði. Hann átti einnig hættulegasta færi Fram í fyrri hálfleik þegar hann skaut í þverslána beint úr aukaspyrnu. Þórhallur Dan Jóhannsson var að finna sig vel á Fylkisvellinum og átti góðan leik fyrir Framara. Þá verður Víðir Leifsson að fá sinn skammt af hrósi en leikur þeirra bláklæddu breyttist mikið eftir að hann kom inn á sem varamaður. „Fyrri hálfleikurinn hjá okkur var ekki nægilega góður og við vorum hræddir við að spila en í hálfleik fengum við smá yfirhalningu og allt annað var að sjá til okkar í seinni hálfleik. Við sýndum baráttu og vilja og náðum að koma þeim út úr spilinu. Þar að auki fáum við meira þor og náum að setja pressu á þá. Viljinn dugði svo til að við næðum þessu mikilvæga stigi,“ sagði Ríkharður Daðason, fyrirliði Fram, eftir leikinn en hann vonast til að vera kominn af stað. „Ég held að ég hafi aldrei áður spilað fimm leiki í röð án þess að skora þannig að ég vona að þessu sé lokið.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Ingvar á leið í lyfjameðferð við illkynja krabbameini Íslenski boltinn Strákarnir læri af biturri reynslu Arnars með Davíð Oddssyni í Japan Fótbolti Fylkir - FH 5-0 | Heimir pakkaði gömlum lærisveinum saman með Mána fremstan í flokki Íslenski boltinn Stuðningsmaður Grindavíkur í bann fyrir bjórdósakast Körfubolti „Þetta hliðarspor mun ekki breyta þeirri vegferð sem ég er á“ Íslenski boltinn „FH er bara á sinni vegferð“ Íslenski boltinn Blaðran heldur áfram að bögga McIlroy Golf Trúir ekki öðru en að hann verði áfram Enski boltinn Kæra komin á borð KKÍ vegna Kane Körfubolti Haukar - Njarðvík | Verður Njarðvík Íslandsmeistari? Körfubolti Fleiri fréttir Tryggvi átti stórleik í sigri gegn toppliðinu „Hrikalegur dagur“ hjá McIlroy sem fékk fjóra skolla í röð Haukar - Njarðvík | Verður Njarðvík Íslandsmeistari? „Ég tek fulla ábyrgð“ Refsað fyrir að mæta mínútu of seint á PGA meistaramótið „FH er bara á sinni vegferð“ Ingvar á leið í lyfjameðferð við illkynja krabbameini Elías bikarmeistari í Danmörku Úrslitaleiknum gæti verið frestað vegna njósnamálsins Ægir sló KA út og bikarmeistararnir flengdir Glódís bikarmeistari annað árið í röð Fertugur Young hættur: „Hvílíkur ferill!“ Fylkir - FH 5-0 | Heimir pakkaði gömlum lærisveinum saman með Mána fremstan í flokki Trúir ekki öðru en að hann verði áfram Hreinn úrslitaleikur um sæti í Bónus-deildinni McIlroy klár þrátt fyrir sársauka „Svo lærir maður á þetta og byrjar að blómstra í lífinu og golfinu“ Stuðningsmaður Grindavíkur í bann fyrir bjórdósakast Lárus hættur í Þorlákshöfn Benóný stýrði fögnuðinum Strákarnir læri af biturri reynslu Arnars með Davíð Oddssyni í Japan Stefnir á að slá heimsmetið aftur í september Sjáðu Foden stela senunni í sigri City Dagskráin í dag: Njarðvík getur tryggt titilinn og PGA meistaramótið hefst „Eins og súpa sem vantar salt og pipar“ „Þú þarft raunverulega að þjást“ „Mann fyrir mann eigum við að vinna þá“ Blaðran heldur áfram að bögga McIlroy Benóný Breki fer á Wembley ÍA vann Grindavík í vítakeppni eftir mikla dramatík Sjá meira
Fylkir - FH 5-0 | Heimir pakkaði gömlum lærisveinum saman með Mána fremstan í flokki Íslenski boltinn
Fylkir - FH 5-0 | Heimir pakkaði gömlum lærisveinum saman með Mána fremstan í flokki Íslenski boltinn