Markalaust jafntefli í Grindavík 16. júní 2005 00:01
Grindavík og KR skildu jöfn suður með sjó í fjörugum markalausum leik þar sem mörg fín færi litu dagsins ljós. KR-ingar hafa ekki skorað sjálfir mark í 319 mínútur og eru án sigurs í fjórum síðustu leikjum. Markaþurrð stórliðs KR hélt áfram í Grindavík í gær þegar KR-ingar mættu varnarsinnuðu liði heimamanna. Engu að síður var leikurinn opinn og skemmtilegur en leikmenn voru einstakir klaufar uppi við markið. Grindvíkingar fögnuðu stiginu en úrslitin eru enn eitt áfallið fyrir KR og er óhætt að segja að það sé orðið verulega heitt undir Magnúsi Gylfasyni þjálfara enda liðið hvorki að spila vel né hala inn stig. Fyrri hálfleikur var mjög fjörugur. Gestirnir úr Vesturbænum byrjuðu með pressu hátt upp völlinn sem Grindvíkingar réðu illa við og þá sérstaklega Eyþór Atli Einarsson og Mathias Jack, sem virtust ekki vita í hvorn fótinn þeir áttu að stíga á köflum. Færin létu ekki á sér standa en KR-ingar voru klaufar fyrir framan markið. Mesta hættan kom frá Grindvíkingnum fyrrverandi Grétari Ólafi Hjartarsyni, en honum voru mislagðir fætur eins og áður í sumar. Grindvíkingar voru lítt hættulegir fram á við en þeir fengu úrvalsfæri í tvígang þökk sé klaufaskap KR-varnarinnar en þeir nýttu færin sín illa rétt eins og gestirnir. Síðari hálfleikur gaf þeim fyrri lítið eftir. Fjölmörg færi litu dagsins ljós og flest þau fengu gestirnir en sem fyrr gekk lítið að koma tuðrunni yfir línuna. Grindavík átti nokkrar hættulegar rispur en sóknarleikur liðsins var frekar tilviljanakenndur. KR réð algjörlega ferðinni allt til enda á meðan heimamenn virtust vera fullsáttir með að fá eitt stig úr leiknum. Það fengu þeir og var stiginu vel fagnað í leikslok enda í fyrsta skipti í sumar sem Grindavík heldur hreinu. „Við erum sáttir enda gott að fá stig gegn KR,“ sagði Sinisa Kekic, varnarmaður Grindvíkinga. „Við vörðumst vel, bæði lið fengu sín færi og ég tel að úrslitin hafi verið sanngjörn. Þetta er eitthvað til að byggja á og við mætum fullir sjálfstrausts í næsta leik.“ KR-ingar gáfu ekki færi á viðtali þegar eftir því var leitað.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Strákarnir læri af biturri reynslu Arnars með Davíð Oddssyni í Japan Fótbolti Stuðningsmaður Grindavíkur í bann fyrir bjórdósakast Körfubolti Fylkir - FH | Heimir mætir gömlum lærisveinum Íslenski boltinn „Þetta hliðarspor mun ekki breyta þeirri vegferð sem ég er á“ Íslenski boltinn Blaðran heldur áfram að bögga McIlroy Golf Kæra komin á borð KKÍ vegna Kane Körfubolti Trúir ekki öðru en að hann verði áfram Enski boltinn „Eins og súpa sem vantar salt og pipar“ Fótbolti Lárus hættur í Þorlákshöfn Körfubolti Gagnrýnir Körfuboltakvöld: Samþykkja svona hegðun og afvegaleiða umræðuna Körfubolti Fleiri fréttir Ægir sló KA út og bikarmeistararnir flengdir Glódís bikarmeistari annað árið í röð Fertugur Young hættur: „Hvílíkur ferill!“ Fylkir - FH | Heimir mætir gömlum lærisveinum Trúir ekki öðru en að hann verði áfram Hreinn úrslitaleikur um sæti í Bónus-deildinni McIlroy klár þrátt fyrir sársauka „Svo lærir maður á þetta og byrjar að blómstra í lífinu og golfinu“ Stuðningsmaður Grindavíkur í bann fyrir bjórdósakast Lárus hættur í Þorlákshöfn Benóný stýrði fögnuðinum Strákarnir læri af biturri reynslu Arnars með Davíð Oddssyni í Japan Stefnir á að slá heimsmetið aftur í september Sjáðu Foden stela senunni í sigri City Dagskráin í dag: Njarðvík getur tryggt titilinn og PGA meistaramótið hefst „Eins og súpa sem vantar salt og pipar“ „Þú þarft raunverulega að þjást“ „Mann fyrir mann eigum við að vinna þá“ Blaðran heldur áfram að bögga McIlroy Benóný Breki fer á Wembley ÍA vann Grindavík í vítakeppni eftir mikla dramatík Uppgjörið: Stjarnan - KR 2-1 | Stjarnan náði fram hefndum Umdeilt víti gefur Celtic séns á titlinum en jafntefli dugir Tómasi og félögum Afturelding skoraði fimm mörk og flaug áfram með Víkingum Safonov hetjan er PSG tryggði titilinn í toppslag Inter er bikarmeistari Ítalíu „Tímapunkturinn hefði ekki getað verið mikið verri“ Kæra komin á borð KKÍ vegna Kane Uppselt á innan við þremur mínútum á þriðja úrslitaleikinn City fagnaði gríðarmikilvægum sigri gegn Palace Sjá meira