Við erum búnir að slíðra sverðin 15. júní 2005 00:01
Ágreiningur Óla Stefáns Flóventssonar, leikmanns Grindavíkur, og Milans Stefáns Jankovic, þjálfara Grindavíkur, hefur verið jafnaður og Óli Stefán mun því leika með félaginu í sumar en hann hætti skyndilega um síðustu helgi. „Ég átti fínan fund með Grindvíkingum á þriðjudagskvöldið og við Janko vorum báðir sammála um að leggja ágreining okkar til hliðar og erum því búnir að slíðra sverðin ef svo má segja. Við mættumst á miðri leið og gáfum báðir eftir. Ég var nokkuð sáttur eftir fundinn,“ sagði Óli Stefán. Lengi vel var fátt sem benti til þess að Óli Stefán og Milan myndu ná sáttum enda var Óli verulega óánægður með þjálfarann og framkomu hans gagnvart honum. „Við Milan erum báðir miklir „prinsippmenn“ og við vorum ósáttir við hluti í fari hvors annars. Við ræddum þetta bara eins og menn og þurftum báðir að éta ýmislegt ofan í okkur. Það er veruleg ánægjulegt að þetta mál sé útkljáð því mér er búið að líða ömurlega yfir þessu.“ Þó sáttafundurinn hafi gengið vel vildi Óli ekki ganga svo langt að segja að menn hefðu fallist í faðma að loknum fundinum. „Ég læt það nú vera,“ sagði Óli og hló létt. „Ég mæti á æfingu í kvöld (gærkvöld) og reyni að koma mér fyrst í hópinn og svo vonandi í liðið. Ég er alveg maður í að vinna mitt sæti í liðinu aftur og það er næst á dagskrá hjá mér. Við Janko byrjum núna með hreint borð og ég verð með Grindavík út þetta tímabil. Það er alveg á hreinu,“ sagði Grindvíkingurinn Óli Stefán Flóventsson.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Daðraði við Dallas áður en hann skrifaði undir hjá Lakers á nýjan leik Körfubolti Enn leikmaður KR en nú lánaður til Lyngby Íslenski boltinn „Líður eins og ég sé hraðari, sterkari og í betra standi en áður“ Fótbolti Mbeumo staðfestur hjá félagi drauma sinna Enski boltinn Amorim og Guardiola vilja fyrrum lærisvein þess fyrrnefnda Enski boltinn Íþróttamaður HK til liðs við ÍA Íslenski boltinn Hótar að stöðva byggingu nýs vallar ef liðið skiptir ekki um nafn Sport Óskiljanlegur miði Vestra vekur athygli Fótbolti Arnór Ingvi skoraði og lagði upp áður en hann fór meiddur af velli Fótbolti Man Utd reynir við Sesko en horfir einnig til Chelsea Fótbolti Fleiri fréttir Daðraði við Dallas áður en hann skrifaði undir hjá Lakers á nýjan leik „Líður eins og ég sé hraðari, sterkari og í betra standi en áður“ Enn leikmaður KR en nú lánaður til Lyngby Amorim og Guardiola vilja fyrrum lærisvein þess fyrrnefnda Íþróttamaður HK til liðs við ÍA Mbeumo staðfestur hjá félagi drauma sinna Arnór Ingvi skoraði og lagði upp áður en hann fór meiddur af velli Frá Skagafirði á Akranes Snýr heim í toppliðið sem dreymir um Bestu Paul ætlar að klára ferilinn hjá Clippers Treyja Shilton og medalía Pelé til sölu Suður-amerískur glæpahringur braust inn til Mahomes og Burrow Líkja yfirburðum Schefflers við Tiger upp á sitt besta Man Utd reynir við Sesko en horfir einnig til Chelsea Vallarmet féllu á frábærum Korpubikar Víkingur mætir líklega Bröndby ef liðið kemst áfram Sjáðu rauða spjaldið og markið sem skaut Valsmönnum á toppinn Óskiljanlegur miði Vestra vekur athygli Liverpool samþykkir að greiða þrettán milljarða fyrir Ekitike Segir árásum fjölga eftir því sem kvennaboltinn stækkar Viss um að Arsenal hafi gert rétt í máli Partey Rashford mættur til Barcelona Fékk útrás fyrir keppnisskapið við heimilisstörfin Kassi í Mosfellsbæinn Hótar að stöðva byggingu nýs vallar ef liðið skiptir ekki um nafn Dagskráin í dag: Snóker, píla og hafnabolti „Heppinn að fá að lifa drauminn“ West Ham sækir bakvörð frá föllnum Southampton-mönnum „Gerir þetta skemmtilegt fyrir deildina“ „Búnir að bíða í 1435 daga eftir að komast á toppinn“ Sjá meira