Hækkar sig í fyrsta sinn í 13 mánu 15. júní 2005 00:01
Nú horfir til bjartari daga hjá íslenska landsliðinu í knattspyrnu eftir afar langt og erfitt ár. Í gær komu nefnilega loksins jákvæðar fréttir um stöðu íslenska landsliðsins á styrkleikalista FIFA sem FIFA birti í gær fyrir júnímánuð. Íslenska landsliðið hafði fallið nánast í frjálsu falli úr 56. sæti niður í það 97. á undanförnum 12 mánuðum en eftir góðan 4-1 sigur á Möltu í undankeppninni í síðustu viku hækkar íslenska liðið sig um heil sjö sæti og fer upp í það 90. Ísland hefur ekki verið ofar á listanum síðan í október 2004 og þetta er líka mesta hækkun íslenska liðsins á listanum síðan í september 2003 þegar liðið fór upp um átta sæti. Ungverjar sem unnu Ísland á Laugardalsvellinum á dögunum hækka sig um 4 sæti og Svíar fara upp um eitt sæti en Króatar og Möltubúar lækka sig um eitt sæti en þessi lið eru eins og kunnugt er með Íslandi í riðli. Það eru aðeins þrjár þjóðir sem hækka sig meira en Ísland á júnílistanum, Tógó (67. sæti) fer upp um 12. sæti, Kóngó (68. sæti) upp um 9. sæti og Gínea stekkur upp um 9. sæti og er nú í 83. sætinu. Brasilíumenn eru enn á toppi listans og halda sínu sæti ásamt Tékkum (2. sæti) og Argentínumönnum (3. sæti) en Hollendingar komust upp fyrir Frakka upp í 4. sætið. Englendingar lækka einnig um eitt sæti og eru komnir niður í 7. sæti listans á eftir Mexíkó. - óój Staða Íslands á FIFA-listanum á einu ári:Maí 2004: 56. sæti Júní 2004: 65. sæti (-9 sæti) Júlí 2004: 75. sæti (-10 sæti) Ágúst 2004: 79. sæti (- 4 sæti) September 2004: 80. sæti (- 1 sæti) Október 2004: 88. sæti (-8 sæti) Nóvember 2004: 90. sæti (-2 sæti) Desember 2004: 93. sæti (- 3 sæti) Janúar 2005: 94. sæti (- 1 sæti) Febrúar 2005: 94. sæti (Sama) Mars 2005: 95. sæti (- 1 sæti) Apríl 2005: 95. sæti (Sama) Maí 2005: 97. sæti (- 2 sæti) Júní 2005: 90. sæti (+ 7 sæti)
Íslenski boltinn Mest lesið Hártogið sem heimurinn hneykslast á: Hvað var hún eiginlega að hugsa? Fótbolti Sænska táningsstelpan tjáir sig um vítið og skilaboðin frá Zlatan Fótbolti „Borgið okkur það sem þið skuldið okkur“ Körfubolti Í beinni: Víkingur - Valur | Einn stærsti leikur sumarsins Íslenski boltinn Íslenskur dómari í næst síðasta ráshópnum á The Open Golf Hetja Þjóðverja í gær hefur sigrast tvisvar á krabbameini Fótbolti Zlatan sendi sænsku táningsstelpunni skilaboð eftir vítaklúðrið Fótbolti Fór úr ökklalið og fótbrotnaði í Lengjudeildarleik Íslenski boltinn Rannsaka Íslendingafélagið Burton Albion Enski boltinn Liverpool kaupir Ekitike fyrir meira en níutíu milljónir evra Enski boltinn Fleiri fréttir Vinna með lögreglunni eftir að Carter varð fyrir kynþáttaníð Búinn í læknisskoðun og ætti að ná Ameríkutúrnum Nýi Liverpool maðurinn í fámennum hópi með Mo Salah Í beinni: Víkingur - Valur | Einn stærsti leikur sumarsins Hera hafnaði í fimmta sæti á Evrópumótinu Scheffler tryggði sér sinn fjórða risatitil Will Ferrell stal athyglinni frá daufum leik Man.United í gær Messi nú með fleiri mörk en Ronaldo Gömul Boston Celtics stjarna semur við Los Angeles Lakers Stefán Ingi með þrennu í fyrri hálfleik Sænska táningsstelpan tjáir sig um vítið og skilaboðin frá Zlatan Giftu sig en gáfu síðan allar brúðkaupsgjafirnar Ísak Snær opnaði markareikninginn hjá Lyngby Kærastinn kom henni í opna skjöldu í markinu eftir hundrað kílómetra hlaup Þjóðverjar sendu íslensku strákana niður í B-deildina Kolbeinn lagði upp sigurmarkið Frankfurt kann það betur en flest félög að græða pening á framherjum Sjáðu sigurmark Viktors og takta Hallgríms fyrir norðan Hnéð gott og getur spilað meira: „Ég er tilbúinn“ Íslenskur dómari í næst síðasta ráshópnum á The Open Hetja Þjóðverja í gær hefur sigrast tvisvar á krabbameini Fengu gullverðlaun sín loksins afhent 28 árum of seint Stelpurnar tryggðu sér fimmtánda sætið „Forréttindi fyrir okkur sem eru nærri honum að fá að verða vitni að þessu“ Fyrsta konan til að þjálfa karlalið í Brasilíu Fór úr ökklalið og fótbrotnaði í Lengjudeildarleik Hártogið sem heimurinn hneykslast á: Hvað var hún eiginlega að hugsa? Liverpool kaupir Ekitike fyrir meira en níutíu milljónir evra „Borgið okkur það sem þið skuldið okkur“ Búið að gera tilboð í Ederson og City horfir til Burnley Sjá meira