Vinnusigur Keflavíkur á Skipaskaga 15. júní 2005 00:01
Skagamenn mega vera mjög ósáttir eftir að liðið tapaði fyrir Keflavík, 2-1, á Skipaskaga. Þetta var mikill baráttusigur Keflvíkinga sem mega prísa sig sæla með stigin þrjú. Guðmundur Steinarsson var hetja Keflavíkur í leiknum. Leikurinn á Akranesi var ekkert sérstaklega skemmtilegur. Þarna voru mætt tvö miðlungslið, í besta falli, sem mega muna fífil sinn fegurri - sérstaklega heimamenn. Ekkert var að gerast löngum stundum í leiknum og í örfá skipti tókst leikmönnum að skapa eitthvað sem vit var í. Dómarinn var engin undantekning og var verulega hallað á Skagamenn í þeim efnum. Gylfi Orrason hefði átt að dæma víti í fyrri hálfleik og þegar Hjörtur Hjartarson er við það að sleppa í gegn dæmir hann brot á Keflvíking aftar á vellinum. Í svona leik hafa slík mistök mikið að segja. Keflvíkingar byrjuðu betur í báðum hálfleikjum en það fjaraði undan leik þeirra er leið á. Mark Hjartar undir lok fyrri hálfleiksins var glæsilegt, sem og sigurmark Guðmundar Steinarssonar. Hann lagði einnig upp jöfnunarmark sinna manna sem Guðjón Árni skoraði af miklu harðfylgi. Sóknarmennirnir og markaskorararnir voru bestu menn sinna liða en þeir þurftu algerlega að sjá um sitt sjálfir. Það var ekkert að gerast í kringum þá. Hjörtur var vitanlega ekki sáttur í leikslok er Fréttablaðið hitti á hann. „Þetta er bara vitleysa. Þeir eiga tvö skot á markið og tvö mörk. Við erum miklu betri allan leikinn en töpum samt,“ sagði Hjörtur. Aðspurður um dómgæslu Gylfa Orrasonar hafði Hjörtur sitthvað til málanna að leggja. „Gylfi var gjörsamlega á afturendanum. Ef menn mæta í svona standi upp á Skaga eiga þeir að hypja sig heim til sín. Svona frammistaða verðskuldar það að menn séu dæmdir niður. Hann rænir okkur færi og sleppir að dæma víti og ég var farinn að halda að línuvörðurinn hefði verið upp á skraut. Ég veit ekki hvað þeir eru að gera á vellinum, þeir horfa upp á menn klippta niður í teignum og gera ekki neitt. Og Gylfi er ekki í takt við allan leikinn, hann er aldrei í kringum baráttusvæðið og er á eftir boltanum í öllum aðgerðum. Svo spjaldar hann tvo, þrjá leikmenn ÍA eftir leikinn fyrir mótmæli. Svona frammistaða á ekki heima hérna,“ sagði Hjörtur. Það skal tekið fram að málfar Hjartar var lagað þannig að það gæti talist hæft til birtingar hér. Kristján Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur var sáttur eftir leik. „Við ákváðum að rífa okkur upp eftir Valsleikinn og það tókst..“ Hann bætti því við að hann skildi ekki af hverju Skagamenn væru ósáttir við dómgæsluna. „Þetta er hluti af leiknum,“ sagði hann.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Leið Englands algjör martröð eins og staðan er Fótbolti Dramatískt sigurmark tryggði Þjóðverjum farseðil í 32-liða úrslit Fótbolti Stóru sleggjurnar ekki afskrifaðar fyrir spennandi kvöld á U.S. Open Golf Bannað að fara í brúðkaup en skoraði sjö mörk og setti met Fótbolti Flugu í 22 tíma á rellu án klósetts til að sjá Skota á HM Fótbolti Hefja viðræður um kaup á Tonali Enski boltinn Vignir Vatnar tryggði sér sigur á sterku boðsmóti Sport Greip gæsina þegar hún gafst og leiddi Hollendinga til stórsigurs Fótbolti „Búinn að þroskast um fimm ár á þessu eina móti“ Golf Fyrstur til að fá rautt fyrir að hylja munninn en Tyrkir úr leik á HM Fótbolti Fleiri fréttir Dramatískt sigurmark tryggði Þjóðverjum farseðil í 32-liða úrslit Þriggja holu bráðabana þurfti í einvígi Perlu og Elsu Hefja viðræður um kaup á Tonali Vignir Vatnar tryggði sér sigur á sterku boðsmóti Greip gæsina þegar hún gafst og leiddi Hollendinga til stórsigurs Stóru sleggjurnar ekki afskrifaðar fyrir spennandi kvöld á U.S. Open Spiluðu allan leikinn í tapi gegn Rosenborg Bannað að fara í brúðkaup en skoraði sjö mörk og setti met Leið Englands algjör martröð eins og staðan er Amanda allt í öllu í frábærri endurkomu Varði mark Víðis og Sindra en er mættur á HM Ronaldinho gæti tekið fram skóna 46 ára gamall Tyrkir í sárum: „Biðjum alla tyrknesku þjóðina afsökunar“ „Búinn að þroskast um fimm ár á þessu eina móti“ Flugu í 22 tíma á rellu án klósetts til að sjá Skota á HM Maður dagsins á HM: „Svikari“ af miklum markvarðaættum Gervigreindar-Maradona hneykslar marga í Argentínu Fyrstur til að fá rautt fyrir að hylja munninn en Tyrkir úr leik á HM Cunha með tvö og Brassar höfðu það náðugt Ætlar að sýna öllum heiminum hvað systir hans heitin sá í honum Dagskráin: Spennan magnast á Opna bandaríska risamótinu í golfi Zlatan trúir því að Bandaríkin geti orðið heimsmeistari Marokkómenn skoruðu sigurmarkið eftir 71 sekúndu Segir að Liverpool verði að berjast um titilinn á fyrsta ári Iraola Skemmdi búningsklefann í klúbbhúsinu í fyrra en setti met í ár Fyrrum markakóngur Seríu A lést 58 ára gamall Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Skotar og Marokkóar berjast um sæti í 32-liða úrslitum Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Leiknisliðsins Bandaríkjamenn með fullt hús eftir tvo leiki Sjá meira