Innlent

Oddvitinn ekki hissa

"Ég veit ekki hvað á að segja um framkvæmd sem fer 150 prósent fram úr áætlun annað en að ég er ekki mjög hissa," segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn. Tilefnið er að komið hefur í ljós að kostnaður við lóðafrágang fyrir utan höfuðstöðvar Orkuveitu Reykjavíkur að Bæjarhálsi nemur 250 milljónum króna og er farið þar duglega fram úr áætlunum. Vilhjálmur segir þetta enn eitt dæmið hvernig valsað er um með peninga borgarbúa af skeytingarleysi og ekki í fyrsta skipti.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×