Innlent

Lagði hornstein að húsi Actavis

Forseti Indlands lagði hornstein þrjú þúsund fermetra rannsóknahúsi í dag sem hýsa mun stærstan hluta þróunar- og rannsóknarstarfs Actavis. Þó að margir hafi beðið lengi eftir vætu fyrir gróðurinn hefðu forsvarsmenn fyrirtækisins sjálfsagt kosið að bíða örlítið lengur. Himnarnir opnuðust hreinlega þegar kom að þessum þætti í dagskrá opinberrar heimsóknar forseta Indlands, Dr. Avul Pakir Jainulabdeen Abdul Kalam. Og þótt athöfnin færi fram innan dyra þá eru byggingaframkvæmdir ekki lengra á veg komnar en svo að varla var þurr þráður eftir á þeim sem ekki náðu að krækja sér í rauðgula regnhlíf, merkta Actavis, til að verjast bleytunni. Róbert Wessman, forstjóri Actavis, segir það mikinn heiður að fá forsetann til að leggja hornsteininn. Eitt af því sem þeir ræddu í dag var alnæmislyf sem verið er að þróa með indversku fyrirtæki. Róbert segir forseta Íslands hafa opnað lyfjaverksmiðju dótturfyrirtækis Actavis á Indlandi fyrr á þessu ári og því hafi fyrirtækinu þótt við hæfi að fá Indlandsforseta til að opna þessa verksmiðju.  Róbert segir starfsmenn fyrirtækisins á Indlandi nú um 250 talsins en þeim eigi eftir að fjölga mikið. En hvers vegna að fara til Indlands? Hann svarar því til að þar sé gríðarleg þekking á samheitalyfjaiðnaðinum, aðgangur að fólki mjög góður og kostnaðurinn klárlega aðeins brot af því sem þekkist á Íslandi og víða annars staðar. Áætlað er að rannsóknahúsið verði tekið í notkun um mitt næsta ár.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×