Norðmenn hugsa sinn gang 30. maí 2005 00:01
Niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar í Frakklandi draga verulega úr líkunum á að Norðmenn hugi að Evrópusambandsaðild á næstu árum, að mati Kjell Magne Bondevik, forsætisráðherra Noregs. Stuðningur við aðild að ESB hefur ekki verið minni í Noregi í tæp fjögur ár. "Ég tel að Norðmenn eigi ekki að flana að neinu á meðan staða Evrópusambandsins er jafn óljós og nú er," sagði Bondevik í samtali við NTB-fréttastofuna í gær. Bondevik hefur áður sagst búast við að þjóðin muni greiða atkvæði um aðild eigi síðar en 2009 en nú hafa forsendurnar gerbreyst að hans mati. Aslaug Haga, leiðtogi Miðflokksins sem er mjög andvígur ESB-aðild, fagnaði úrslitunum og sagði þau byr í seglin fyrir efasemdarmenn um ESB hvarvetna. Jens Stoltenberg, formaður Verkamannaflokksins, ítrekaði hins vegar að lyktir frönsku atkvæðagreiðslunnar þýddu ekki að staða ESB hefði veikst, en flokkurinn er því fylgjandi að Noregur gangi í ESB. Ný skoðanakönnun Sentios-fyrirtækisins bendir til að stuðningur Norðmanna við aðild að sambandinu hafi ekki verið minni í tæp fjögur ár. 40,8 prósent fólks segjast styðja aðild og 44,5 prósent eru því andvíg en 14,7 prósent eru óákveðin.
Erlent Fréttir Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Erlent „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Fleiri fréttir Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Sjá meira