Fljótum sofandi að feigðarósi 26. maí 2005 00:01
Að mati leiðandi vísindamanna er fuglaflensan komin á fremsta hlunn með að verða að heimsfaraldri og verði ekki gripið til markvissra aðgerða er voðinn vís. Kínverjar segjast hafa þróað nýtt bóluefni fyrir fugla og menn en Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO tekur þeim tíðindum varlega. Nýjasta hefti vísindaritsins Nature sem út kom í gær er helgað fuglaflensunni. Þar vara greinarhöfundar við að H5N1-veiran sé smám saman að taka breytingum og verða skæðari. Dæmi um það sé fundur 519 gæsahræja í Kína um síðustu helgi. Vísindamenn óttast helst að bráðum geti veiran smitast á milli manna og þá er voðinn vís. WHO gerir ráð fyrir að aðeins muni taka veiruna nokkra mánuði að breiðast út um heiminn og á þeim tíma verði að leggja þrjátíu milljónir manna á sjúkrahús. Af þeim muni 7,5 milljónir deyja. Albert Osterhaus, prófessor við Erasmus-stofnunina í læknavísindum í Rotterdam, segir í grein sinni í Nature að mat WHO "sé á meðal bjartsýnustu spáa um hver þróun faraldursins verður." Hann hvetur til að sett verði á fót sérstök aðgerðasveit færustu vísindamanna heims sem fái það verkefni að stilla saman strengi stjórnvalda víða um heim. Leiðarahöfundur Nature tekur í svipaðan streng og bendir á að ef faraldur hefst innan skamms verði ekki til nægt bóluefni í heiminum fyrr en eftir hálft ár eins og staðan er í dag. Þá er hins vegar orðið of seint að bólusetja. Því sé forgangsatriði að koma í veg fyrir að veikin nái að breiðast út með því að uppræta hana á meðan hún er enn að mestu bundin við fugla. Í gær lýstu Kínverjar því yfir að enginn hefði smitast af farfuglunum 519 sem fundust dauðir í Qinghai-héraði um helgina. Þá hermir Xinhua-fréttastofan að kínverskir vísindamenn hafi þróað bóluefni sem á að geta komið algjörlega í veg fyrir fuglaflensusmit í fuglum og spendýrum. Embættismenn hjá WHO taka fréttunum hins vegar með varúð og segja að efnið hafi að líkindum aðeins verið prófað á fuglum, ekki spendýrum. Því sé of snemmt að segja til um gagnsemi þess fyrir mannfólkið.
Erlent Fréttir Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira