Leitin að stríðsglæpamönnum hert 26. maí 2005 00:01
Aukin harka hefur færst í leitina að stríðsglæpamönnum í Bosníu en nú styttist í að tíu ár séu liðin frá fjöldamorðunum í Srebrenica. Í morgun réðust hermenn NATO inn í íbúð sonar Radovans Karadzic, leiðtoga Serba í stríðinu í Bosníu, en í gær réðust þeir inn á heimili eiginkonu Karadzic. Hvorki fannst tangur né tetur af honum sjálfum en talsmaður NATO segir tilganginn fyrst og fremst að auka þrýstinginn á Karadzic og fylgismenn hans. Undanfarið hefur verið lögð meiri áhersla á að fanga Karadzic og harkan í leitinni að honum hefur aukist. Almennt er talið í Sarajevo að yfirvöld í serbneska lýðveldinu Serbska, sem nær yfir hluta Bosníu, viti hvar Karadzic er að finna og hylmi yfir með honum. Þó að á þriðja hundrað hermanna NATO þar hafi þann starfa einan að finna stríðsglæpamenn er talið næsta útilokað að þeir finni Karadzic, enda herma fregnir að hann hafi margoft rétt náð að koma sér undan sveitum sem eru á hælum hans. Því hefur pólitískur þrýstingur verið stóraukinn. Í Bosníu er almennur áhugi fyrir því að ganga í Evrópusambandið og helst í NATO einnig, en yfirvöldum hefur verið gerð grein fyrir því að slíkt sé með öllu útilokað á meðan níu serbneskir stríðsglæpamenn og einn króatískur leiki lausum hala. Efstur á þeim lista er Karadzic sem hefur verið ákærður fyrir aðild að morðinu á 7400 karlmönnum og drengjum í Srebrenica þann 11. júlí 1995. Radko Mladic, sem stýrði hersveitum Bosníu-Serba í stríðinu, er annar stríðsglæpamaður sem leitað er en hann er talinn í felum í Serbíu og svo virðist sem stjórnvöld þar geri lítið sem ekkert til að reyna að finna hann.
Erlent Fréttir Mest lesið Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Flutt á sjúkrahús með hraði vegna innvortis fíkniefnasmygls Innlent Hitamet í maí slegið í Bretlandi Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Innlent Framkvæmdum við Suðurlandsveg frestað Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Fleiri fréttir Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Sjá meira