Hart sótt að Blair 3. maí 2005 00:01
Enn er sótt að Tony Blair forsætisráðherra vegna Íraksmálsins. Á mánudag féll breskur hermaður við skyldustörf þar og hafa fjölmiðlar hafa gert mikið úr þessum atburði á lokaspretti kosningabaráttunnar. Meðal annars var haft eftir ekkju hermannsins að dauði hans væri Blair að kenna. Þá mættu fulltrúar samtaka aðstandenda fallinna hermanna að Downingstræti 10 og afhentu kröfu um að fram færi ný óháð rannsókn á því hvort ákvörðunin um þátttöku Bretlands í Íraksstríðinu hefði verið lögleg. Viðhorfskannanir hafa þó ítrekað sýnt að Íraksmálið sé ekki mjög ofarlega á lista flestra kjósenda yfir þau mál sem þeim þykir skipta mestu í þessum kosningum. Efnahags- og velferðarmálin standa flestum nær, og á þessum sviðum stendur stjórnin allsterkt að vígi að mati meirihluta kjósenda. Óánægjan sem margir stuðningsmenn Verkamannaflokksins bera í brjósti í garð Blairs vegna Íraksstríðsins virðist þó ætla að verða til þess að allnokkrir þeirra láti hana í ljósi með því ýmist að sitja heima á kjördag eða kjósa Frjálslynda demókrata, eina stóru flokkanna þriggja sem frá upphafi var andsnúinn innrásinni í Írak.
Erlent Fréttir Mest lesið Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Erlent Óvíst hvort Guðmundur Ingi snúi aftur í ráðuneytið Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent Meðalbílaleigubíllinn verði fyrir mestum áhrifum Innlent Fjölgun landsmanna það eina sem hafi komið í veg fyrir tekjufall Rúv Innlent Skýrslan ekki til neins ef ekki verði brugðist við Innlent Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent Umferðarslys á Breiðholtsbraut Innlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Fleiri fréttir Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Lögðu á ráðin um sprengjuárásir í Kaliforníu Grönduðu kafbát í fyrsta sinn með neðansjávardróna Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Krefjast þess enn að Úkraínumenn hörfi frá Donbas Spjótin beinast að syni Reiners Ætla að herða lög um byssur enn frekar eftir árásina Starfsmenn Louvre mótmæla slæmum aðstæðum Hálfíslensk hljómsveit skilgreind öfgasamtök í Rússlandi Morðinginn í Brown gengur enn laus Heyrði byssuhvellina: Skotvopnalöggjöfin rædd á kaffistofunni Sílebúar tóku Kast Árásarfeðgarnir nafngreindir Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Skotmennirnir feðgar Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Einn í haldi í tengslum við skotárás í Brown-háskóla Rabbíni drepinn í árásinni Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Rannsókn á meintri gagnaöflun um Giuffre felld niður Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Föngum sleppt og viðskiptaþvingunum aflétt Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Witkoff fundar með Selenskí ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Sjá meira