Minntust loka Víetnamstríðs 30. apríl 2005 00:01
Þrjátíu ár eru liðin frá lokum Víetnamstríðsins og þess var minnst í dag. Fjöldi bandarískra hermanna er af því tilefni í Víetnam. Hersveitir voru á ný á ferð um stræti borgarinnar sem í þrjátíu ár hefur heitið Ho Chi Minh borg. Árið 1975 hét hún Saigon og Víetnamstríðinu var að ljúka. Í dag minntust hermennirnir sem þar börðust saman fallinna. Einn þeirra er Dan Scruggs sem kemur nokkrum sinnum á ári til að stjórna jarðsprengjuleit. Hann segir að með hverju árinu sem líði batni ástandið í landinu. Tilefnið nú sé mjög sérstakt og að töfrar og nostalgía sé í loftinu fyrir þá bandarísku blaðamenn og fyrrverandi hermenn sem séu í landinu. Hið sama gildi að sjálfsögðu fyrir Víetnama, en þeir hafi verið einstaklega gestrisnir og indælir hvert sem hann hafi farið, ekki síst þeir fyrrverandi hermenn sem bandarískir hermenn hafi barist við á sínum tíma. Þeir vilji leita vináttubanda. Scruggs er einn þeirra hermanna sem komust lifandi heim, en annarra er enn þann dag í dag saknað. Randy Ard var skotinn niður yfir frumskógum Víetnams árið 1971 og fjölskylda hans vonaði alltaf að hann fyndist. Emmie, móðir hans, og Nell, systir hans, segja að þær hafi þurft að vita hvað hefði orðið um hann en þær hafi lengi haldið að að þær fengju aldrei að vita það. Hins vegar hafi þær á endanum fengið fréttir af honum. Lík Randys fannst í Laos. Nell segir að hann sé enn með fjölskyldunni og þær geti sýnt honum að þeim þyki enn vænt um hann og að þær hugsi enn um hann.
Erlent Fréttir Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Sjá meira