Innlent

Harður árekstur í Kollafirði

Tveir fólksbílar lentu í hörðum árekstri innst í Kollafirði rétt fyrir klukkan ellefu og eru þar umferðartafir vegna þess. Fullorðin hjón voru í öðrum bílnum og ung hjón með lítið barn í hinum. Allir virðast hafa sloppið ómeiddir og hjálpuðu vegfarendur fólkinu yfir í aðra bíla þar sem bílarnir, sem skullu saman, eru gerónýtir. Að sögn vegfaranda sem kom að er krapi á veginum og virðist annar bíllinn hafa runnið í veg fyrir hinn sem kom úr gagnstæðri átt.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×