Innlent

Meirihluti á móti stóriðju

Talsverður meirihluti Skagfirðinga er á móti stóriðju í Skagafirði samkvæmt skoðanakönnun sem iðnaðarráðuneytið lét gera og iðnaðarráðherra kynnti á Sauðárkróki í gærkvöldi. Lítill stóriðjuáhugi í Skagafirði og í Eyjafirði kemur mörgum á óvart. Rúmlega 37 prósent aðspurðra voru fylgjandi stóriðju í Skagafirði en tæp 46 prósent andvíg og rúm 17 prósent voru óákveðin. Hins vegar voru 53 prósent Skagfirðinga jákvæð gagnvart því að stóriðja rísi annars staðar á Norðurlandi en í Skagafirði. Sambærileg könnun í Eyjafirði leiddi í ljós að naumur meirihluti var fylgjandi stóriðju við Eyjafjörð en fylgi við slíkt er heldur meiri í Þingeyjarsýslum, þótt hann hafi alls staðar mælst minni en búist hafði verið við. Þrátt fyrir mestan stóiðjuáhuga í Þingyjarsýslunum vekur athygli að þar var einnig rúmlega helmingur hlynntur því að virkja Jökulsá og jarðhitasvæði í fjórðungnum til raforkuframleiðslu fyrir álver annars staðar á Norðurlandi. Í Eyjafirði kom líka fram áhugi á að reisa álver á Norðurlandi, annars staðar en í Eyjafirði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×