Njarðvík úr leik, ÍR áfram 13. mars 2005 00:01
ÍR braut blað í sögu félagsins er liðið komst í undanúrslit úrslitakeppninnar í Intersportdeildinni í körfuknattleik í gær þegar liðið lagði Njarðvík, 86-83, í Seljaskóla. ÍR vann því samanlagt 2-0 og afrekið ekki síður merkilegt fyrir það leyti að 12 ár eru liðin síðan að Njarðvíkurliðið komst ekki í undanúrslit en það var árið 1993. Firnasterkur varnarleikur og góð liðsheild var lykill ÍR-inga að sigrinum en Njarðvíkingar hafa oft séð betri daga og þurfa að bíta í það súra epli að vera sópaðir út úr úrslitakeppninni í fyrstu umferð. "Sóknin skelfileg framan af og þeir hittu úr stóru skotunum. Ég hef fátt annað að segja," sagði Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkurliðsins, vonsvikinn eftir tapið. Alvin Snow hefði mátt koma fyrr til liðsins en hann átti margar tilraunir til stoðsendinga sem rötuðu ekki rétta leið sökum skorts á samæfingu. "Þetta var ákvörðun sem við tókum og stöndum og greinilega föllum með henni," sagði Einar en Njarðvíkingar gripu til þess ráðs að endurnýja stöðu erlendra leikmanna hjá liðinu skömmu fyrir úrslitakeppnina. ÍR-ingar voru í skýjunum með árangurinn gegn Njarðvík. "Þetta er rosaleg tilfinningin, erfitt að lýsa þessu," sagði Ómar Örn Sævarsson, leikmaður ÍR-inga. "Þetta er í fyrsta sinn í langan tíma sem að ÍR kemst í gegnum fyrstu umferð í úrslitakeppninni og maður er bara ekki almennilega búinn að melta þetta. Það fór um mann þegar Brenton fór í gang, en hann getur hæglega klárað leiki upp á eigin spýtur. Njarðvíkurliðið er náttúrulega mjög sterkt lið og það að við skulum halda því í 83 stigum er frábært." En hvaða lið vill Ómar fá í næstu umferð? "Það skiptir engu máli." Stig ÍR: Theo Dixon 25 (7 fráköst), Grant Davis 22 (13 fráköst, 2 varin skot), Eiríkur Önundarson 21 (7 stoðsendingar, 3 stolnir), Ólafur J. Sigurðsson 8 (5 stoðsendingar), Fannar Helgason 6, Ómar Örn Sævarsson 4 (12 fráköst, 3 stolnir). Stig Njarðvíkur: Brenton Birmingham 20 (7 fráköst), Alvin Snow 18 (8 fráköst, 8 stoðsendingar), Doug Wrenn 16 (10 fráköst, 2 varin skot), Friðrik Stefánsson 12 (10 fráköst, 4 varin skot), Páll Kristinsson 10, Halldór Karlsson 4, Guðmundur Jónsson 3,.
Körfubolti Mest lesið Feginn að hafa ekki fengið áframhaldandi samning Sport Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Fótbolti Frábær byrjun Englendinga Fótbolti Efast um Frey og segir hann hvorki fyrsta, annan né þriðja kost Fótbolti Maður dagsins á HM: Af hverju fór Messi að gráta og átti að reka hann út af? Fótbolti Kristófer og Guðrún eignuðust son Körfubolti „Ísland ætti ekki að eiga kylfing sem spilar svona vel“ Golf Allt í bál og brand í Formúlu 1 Formúla 1 Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Körfubolti Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Golf Fleiri fréttir Feginn að hafa ekki fengið áframhaldandi samning Alsíringum tekið opnum örmum í Kansas Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Þjálfaraskipti hjá Sveindísi Frábær byrjun Englendinga Komust í undanúrslit eftir framlengdan leik Sýndi miklar tilfinningar eftir fyrsta markið Þjóðhátíðarsigur á Ísafirði Portúgal - Austur-Kongó | Ronaldo byrjar og slær met ÍR stöðvaði Gróttu og Kári kom Fylki í annað sæti Íslendingarnir fengu mjög góð ráð frá Patrick Reed Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Bjó til sex mörk Fram á gamla heimavellinum Kristófer og Guðrún eignuðust son Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Efast um Frey og segir hann hvorki fyrsta, annan né þriðja kost Evrópudagskrá íslensku liðanna klár Vestri gæti farið til Búlgaríu eða Írlands Mourinho hringdi í Silva sem samdi til tveggja ára Ísraelskt lið bíður Víkinga Maður dagsins á HM: Af hverju fór Messi að gráta og átti að reka hann út af? Sjáðu mörkin í Víkinni, sturlunina í Garðabæ og Viktor tækla Val Allt í bál og brand í Formúlu 1 „Ísland ætti ekki að eiga kylfing sem spilar svona vel“ Freyr ráðinn þjálfari Rosenborg Tárvotur Messi jafnaði HM markametið með þrennu Haaland í ham er Noregur hóf HM á sigri „Tvær stórar ákvarðanir sem féllu á móti okkur“ „Aldrei stressaður um að þeir myndu jafna“ Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Sjá meira