Sport

Owen hvetur Liverpool áfram

Michael Owen segist vona að hans fyrrum félagar hjá Liverpool muni fara alla leið og vinna Meistaradeildina nú eftir að Real Madrid er dottið út. Draumur Owen um að Real og Liverpool myndu dragast saman varð að engu í Tórínó á miðvikudaginn er Juventus sló Real út, en um leið og Owen hafði jafnað sig á þeim vonbrigðum talaði hann um von sína um gott gengi sinna fyrrum félaga í keppninni. "Eftir að ég hafði jafnað mig eftir Juventus leikinn sá ég úrslitin hjá Liverpool og varð ánægður," sagði Owen. "Ég mun hringja í þá og óska þeim til hamingju." "Við vitum öll hvað gerðist í fyrra er Porto og Monaco spiluðu til úrslita í Meistaradeildinni og er Grikkland varð Evrópumeistari. Það myndi ekki koma eins mikið á óvart að sjá Liverpool í úrslitum Meistaradeildarinnar og það var að sjá Porto og Monaco þar. Óstöðuleikinn hjá þeim í vetur hefur verið ótrúlegur, en með tveimur til þremur góðum úrslitum í Meistaradeildinni gæti þetta orðið besta tímabil liðsins í 20 ár."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×