Innlent

Taugatitringur innan Árvakurs

Núverandi stjórnendur Morgunblaðsins og tengdir aðilar telja sig geta varist óvinveittri yfirtöku. Taugatitrings gætir meðal helstu hluthafa þessarar áttatíu og þriggja ára gömlu íslensku stofnunar og greinilegt að öll dýrin í skóginum eru ekki lengur vinir. 

Núna segja menn að ekkert sé heilagt í íslenskum viðskiptum lengur þegar reynd er óvinveitt yfirtaka á Morgunblaðinu. Árvakur, sem á Morgunblaðið, hefur verið í eigu fárra hluthafa alla tíð, fjölskyldna sem í meira en áttatíu ár hafa gengið í takt. Það er, þangað til nú.  

Nýlega seldi Johnson-fjölskyldan tíu prósenta hlut í Árvakri og keypti Kristinn Björnsson og fjölskylda. Johnson-fjölskyldan geymdi sín hlutabréf í félaginu sem Kristinn og fjölskylda keyptu og komust þannig hjá forkaupsréttarákvæðum sem annars gilda milli hluthafa. Nú ætlar Haraldur Sveinsson að selja sín sextán prósent. Hann fékk tilboð í nafni Íslandsbanka - að sögn mjög gott - og samþykkti það.  Þeir sem standa að tilboðinu eru Meiður - félaga Bakkavararbræðra -, Erlendur Hjaltason, framkvæmdastjóri Meiðs, og bræðurnir Einar og Benedikt Sveinssynir - kenndir við Sjóvá, Íslandsbanka og gamla Kolkrabbann. Þessu tilboði hefur verið lýst sem tilraun til óvinveittrar yfirtöku, m.a. á fundi Hallgríms Geirssonar framkvæmdastjóra með starfsmönnum Morgunblaðsins í gær. 

Sagði Hallgrímur í samtali við fréttastofu að þetta hafi verið reglulegur fundur með starfsmönnum og eðlilegt að skýra þeim frá breytingum á eignarhaldi.  Þótt tilboðið til Haraldar hafi verið gott er þegar ljóst að ákveðnir hluthafar ætla að mæta því og nýta forkaupsréttinn. Þeir líta svo á að Valtýr hf., félag afkomenda Valtýs Stefánssonar, sé í samstarfi við hina svokölluðu óvinveittu tilboðsgjafa. Þeir fjölmörgu sem fréttastofa hefur rætt við í dag segja augljóst að bæta þurfi rekstur Morgunblaðsins og nauðsynlegt að styrkja lýðræðislega fjölmiðlaumfjöllun á Íslandi. Því sé nú slegist um Moggann. Talað hefur verið um að þegar Bakkavararbræður hafi keypt Símann muni þeir búa til mótvægi við Baugsveldið með sameiningu Símans, Skjás Eins og Morgunblaðsins.  Þetta hljómar allt vel og sniðuglega en hefur alls ekki fengist staðfest í dag.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×